Landhelgisgæslumenn tóku þátt í flugmessu

Sunnudagur 30. maí 2005.

Landhelgisgæslumenn tóku þátt í flugmessu í Grafarvogskirkju 30. maí sl. Þetta var fyrsta guðþjónusta þeirrar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi.

Séra Vigfús Þór Árnason sóknarprestur og séra Bjarni Þór Bjarnason þjónuðu fyrir altari.  Benóný Ásgrímsson yfirflugstjóri hjá Landhelgisgæslunni flutti hugleiðingu.   Ritningarlestra lásu Signý Pétursdóttir, flugumferðarstjóri og bænir fluttuHertvig Ingólfsson, flugvirki og Rafn Jónsson, flugstjóri. Lokabæn flytur Björn Þverdal, flugvirki. Organisti er Ólafur W. Finnsson, flugstjóri.

Flugfreyjukórinn syngur ásamt félögum úr kvartett flugstjóra. Einsöng syngur Þuríður Sigurðardóttir, myndlistamaður og fv. flugfreyja, Jóhannes Bjarni Guðmundsson, flugmaður, leikur á fiðlu, Sigrún Hermannsdóttir, flugfreyja, leikur á flautu, Jón Hörður Jónsson, flugstjóri, leikur á kontrabassa og á trompet leika þau Berglind Jóna Þráinsdóttir, flugfreyja, Ingibjörg Lárusdóttir, flugfreyja og Sigurður Wiium, flugmaður.

Upp úr kl 10:00 munu fallhlífastökkvarar lenda við Grafarvogskirkju.
Listflug verður við kirkjuna um kl. 13:00. Flugvélar í áætlunarflugi munu fljúga yfir Grafarvoginn. LÍTIL ÞYRLA VERÐUR staðsett við Grafarvogskirkju.

Flugfólk er beðið að mæta í sínum einkennisbúningum þau sem eiga slíka og nota þá við störf sín.

Rekstaraðilar, starfsmannafélög og lífeyrissjóðir er tengjast flugrekstri bjóða upp á “flugkaffi” eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir!

Björn Erlingsson 25/5 2005