Áhöfn TF-LIF sótti slasaðan vélsleðamann á Langjökul
Föstudagur 27. maí 2005.
Læknir í Borgarnesi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 21:57 og óskaði eftir aðstoð vegna manns sem hafði lent í vélsleðaslysi á suðvestanverðum Langjökli.
Áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 22:24. Hún lenti með manninn við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 23:20.
Sjá meðfylgjandi mynd sem áhöfn TF-LIF tók á Langjökli í kvöld.
Dagmar Sigurðardóttir
upplýsingaftr.
Frá slysstað.