Áhöfn varðskipsins Óðins fann bandarískt veðurdufl 99 sjómílur vestsuðvestur af Reykjanesi
Föstudagur 6. maí 2005.
Áhöfn varðskipsins Óðins fann á dögunum veðurdufl 99 sjómílur (183 km) vestsuðvestur af Reykjanesi. Veðurduflið er í eigu bandarísku Hafrannsóknastofnunarinnar (NOAA).
Duflinu var lagt út í júlí 2004 155 sjómílur (287 km) austur af Hvarfi á Grænlandi en þar er um eða yfir 3000 metra dýpi. Fyrstu sendingar frá duflinu bárust um
Á svipuðum tíma og veðurduflið slitnaði frá legufærunum, slitnuðu tvö önnur dufl bandarísku Hafrannsóknastofnunarinnar frá legufærum undan austurströnd Bandaríkjanna en skip bandarísku strandgæslunnar náðu þeim um borð áður en þau rak á land. Hvert dufl er metið á um 250.000 bandaríkjadali.
Að sögn Halldórs Nellett skipherra á varðskipinu Óðni var duflið sem Óðinn fann fyrst og fremst sett út til að kanna hvernig slíkum duflum reiðir af í slæmu veðri. Staðurinn þar sem það var sett út er algjört veðravíti yfir vetrartímann að hans sögn. Þar getur verið mikil ísing og ölduhæð og jafnvel ísrek.
Meðfylgjandi myndir tók Árni Ólason smyrjari á Óðni er verið var að hífa duflið um borð í varðskipið.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.