Forstjóri Landhelgisgæslunnar heimsækir Varnarliðið
Föstudagur 18. febrúar 2005.
Forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, Georg Kr. Lárusson, fór í vikunni í sína fyrstu opinberu heimsókn til Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli eftir að hann var skipaður í embættið. Heimsóknin var í boði yfirmanns Varnarliðsins, Roberts M. McCormick ofursta, sem tók á móti forstjóranum og fylgdarliði hans ásamt sínum nánustu samstarfsmönnum.
Helstu samstarfsstofnanir Landhelgisgæslunnar innan varnarsvæðisins voru heimsóttar og fjallað um sameiginleg verkefni en varnarsvæðið í heild var einnig kynnt. Þrátt fyrir ýmsar breytingar á skipulagi Varnarliðsins verður það áfram mikilvægur öryggishlekkur í mörgum verkefnum sem Landhelgisgæslan ber ábyrgð á. Þau mál voru m.a. rædd á meðan á heimsókninni stóð.
Varnarliðið er og hefur verið mikilvægur samstarfsaðili Landhelgisgæslunnar á sviði björgunar- og öryggismála um áratuga skeið og samskiptin mikil, náin og fagmannleg. Landhelgisgæslan er tengiliður Varnarliðsins gagnvart íslenskum aðilum á sviði leitar- og björgunarmála samkvæmt sérstökum samningi þar um.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.