Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri kveður starfsfólkið

Fimmtudagur 30. desember 2004.

Síðasti vinnudagur Hafsteins Hafsteinssonar forstjóra er á morgun, gamlársdag.  Þar sem margir verða í fríi á morgun kom starfsfólkið í höfuðstöðvunum á Seljavegi, varðskýli og á flugvelli til að kveðja Hafstein.  Áður hafði Hafsteinn farið um borð í varðskipin og kvatt áhafnir þeirra. 

Meðfylgjandi myndir tók Árni Vésteinsson deildarstjóri í dag er Hafsteinn flutti stutta kveðjuræðu.