Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar eyðir sprengjum fyrir Varnarliðið

Miðvikudagur 15. desember 2004.

Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar fékk það verkefni í gær að eyða 500 handsprengjum fyrir Varnarliðið. 

Handsprengjurnar höfðu skemmst í geymslum Varnarliðsins og þurfti að eyða þeim.  Það var gert með tveimur sprengingum en alls var rúmlega 150 kílóum af sprengiefni eytt. 

Eins og kunnugt er gerðu Landhelgisgæslan og Varnarliðið samning um að sprengjudeild Landhelgisgæslunnar sæi alfarið um sprengjueyðingu fyrir Varnarliðið fyrir rúmlega 4 árum síðan. Að því best er vitað er það einsdæmi að bandaríski herinn sæki slíka þjónustu til borgaralegrar stofnunar.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.


Mynd Adrian King sprengjusérfræðingur: Sigurður Ásgrímsson sprengjusérfræðingur með hluta sprengiefnisins sem var eytt fyrir Varnarliðið.