Nemendur í Lögregluskólanum æfa sjóbjörgun hjá Landhelgisgæslunni
Miðvikudagur 20. október 2004.
Í vikunni var haldið námskeið í sjóbjörgun fyrir nemendur í Lögregluskólanum. Landhelgisgæslan hefur undanfarin ár séð um að halda slík námskeið fyrir lögreglunema. Það var upphaflega
Námskeiðið byrjar með hálfs dags bóklegri kennslu. Byrjað er á kynningu á starfsemi Landhelgisgæslunnar og síðan eru nemendur fræddir um björgunartæki og léttbáta. Þá er farið í rannsókn sjóslysa og lögbrota um borð í skipum og kennd undirstöðuatriði í móttöku þyrlu. Sjá fræðslu um móttöku þyrlu á heimasíðu Landhelgisgæslunnar á slóðinni: /displayer.asp?cat_id=27
Verklega námið stendur yfir í heilan dag. Nemendur byrja á því að hittast við Reykjavíkurhöfn. Þar skoða þeir varðskip og síðan er þeim skipt upp í þrjá hópa sem ganga milli þriggja æfingastöðva. Einn hópur æfir sig í að bjarga fólki úr sjó og fær einnig þjálfun í að bregðast við þegar léttbátur með nokkra nemendur innanborðs hvolfir, annar hópurinn lærir að stjórna (zodiac) léttbátum og þriðji hópurinn lærir að fara með harðbotna björgunarbáta og björgun manna um borð í þá.
Þar næst er farið í kappsund í sjónum. Allir þátttakendur eru klæddir björgunarbúningum og það eru talsvert öðruvísi sundtök sem menn þurfa að tileinka sér til að komast áfram í slíkri múnderingu miðað við venjulegt sund í sundlaug.
Að sundinu loknu fá lögregluskólanemar þjálfun í að sigla léttbátunum upp að skipi á ferð. Námskeiðinu lýkur svo með því að allir lögregluskólanemarnir eru hífðir upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flytur þá út á Reykjavíkurflugvöll en þar fá þeir kynningu um starfsemi flugdeildar.
Sjá meðfylgjandi myndir sem Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður tók í vikunni þegar æfingar stóðu yfir.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Lögregluskólanemar búa sig undir að stökkva í sjóinn.
Kappsund.
Thorben og Auðunn leiðbeindu á námskeiðinu.
Meðferð björgunarbáta æfð.
Allur hópurinn um borð í varðskipinu Ægi ásamt Auðunni F. Kristinssyni leiðbeinanda frá Landhelgisgæslunni lengst til hægri.
Allir nemendurnir voru fluttir með þyrlunni TF-LIF frá varðskipinu Ægi út í flugskýli Landhelgisgæslunnar við Reykjavíkurflugvöll þar sem þeir fræddust um starfsemi flugdeildarinnar.