Rússarnir farnir
Laugardagur 16. október 2004.
Rússnesku herskipin sem hafa haldið sig á Þistilfjarðargrunni undanfarna daga eru nú farin af svæðinu. Landhelgisgæslan leigði flugvél flugmálastjórnar, TF-FMS, til að fara í eftirlitsflug í morgun og kom þá í ljós að skipin höfðu siglt á brott.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Rússneska beitiskipið Pétur mikli og eitt af dráttarskipum rússneska sjóhersins.