Rússnesk herskip norðaustur af landinu
Laugardagur 9. október 2004.
Í gæsluflugi Landhelgisgæslunnar í dag var komið að sjö rússneskum herskipum sem lágu fyrir akkeri 8-15 sjómílur utan við 12 sjómílna landhelgismörkin norðaustur af Raufarhöfn. Skipin hafa verið á æfingu austur og norðaustur af Íslandi undanfarna daga. Áhöfn TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, varð fyrst vör við skipin 29. september. Landhelgisgæslan hefur ekki fengið tilkynningar um heræfingar frá rússneskum yfirvöldum.
Um er að ræða eftirtalin skip: Flugmóðurskipið Admiral Kuznetsov (síðunúmer 063) en það er 58 þúsund tonn og 304 metra langt, beitiskipið Pyotr Velikiy (síðunúmer 099) en það er 24.300 tonn að stærð og 252 metra langt, Marshal
Flugmóðurskipið og birgðaskipið voru tengd saman með olíuslöngu þegar sást til þeirra og voru þau að öllum líkindum að umskipa olíu. Á myndum af skipunum sést stór olíuflekkur aftan úr þeim. Öll skipin tilheyra rússneska sjóhernum.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.