TF-SYN kom til landsins í dag eftir bráðabirgðaviðgerð í Færeyjum
Laugardagur 2. október 2004.
TF-SYN kom frá Færeyjum á sjöunda tímanum í dag. Eins og fram kom í gær varð að fá varahlut frá Luxemburg sem flugvél Flugmálastjórnar sótti þangað og kom til Færeyja. Tæknistjóri flugdeildar og flugvirki gerðu bráðabirðgaviðgerð á vélinni með því að koma varahlutnum fyrir og fékkst leyfi frá Flugmálastjórn til að ferja flugvélina til landsins þar sem fullnaðarviðgerð verður framkvæmd.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.