Starfsmenn þyrluáhafnar Landhelgisgæslunnar fá rauð blikkljós í bíla sína

Fimmtudagur 30. september 2004.

Starfsmenn í þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar hafa fengið rauð ljós í bíla sína til að auðvelda þeim að komast leiðar sinnar í umferðinni.  Þegar þyrluáhafnir eru kallaðar út, þurfa áhafnarmeðlimir að hraða sér út á flugvöll án þess þó að brjóta umferðarreglur. Ljóst er að oftast liggur líf við þegar óskað er eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Það getur því verið bagalegt þegar áhafnarmeðlimir lenda í umferðarteppu á leið til flugvallarins. Til þess að ráða bót á þessu ákvað dómsmálaráðuneytið í samráði við Landhelgisgæsluna og lögregluyfirvöld að útvega þyrluáhöfninni þessi rauðu blikkljós.

Ljósin sem þyrluáhafnirnar hafa fengið eru ekki eiginleg forgangsljós.  Þau þjóna þeim tilgangi að auka öryggi og óska eftir tillitsemi annarra ökumanna.  Einnig er þá auðveldara fyrir lögregluna að koma auga á þyrlustarfsmenn til að aðstoða þá við að komast leiðar sinnar í neyðartilfellum.

Þeir starfsmenn þyrluáhafna sem prófað hafa ljósin segja að þau hafi breytt miklu.  Aðrir ökumenn hafi sýnt þeim meiri tillitsemi og vikið fyrir þeim. 

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.

Mynd DS: Sigurður Heiðar Wiium með nýju rauðu blikkljósin og merki sem er sett á bíla starfsmanna þyrluáhafnar Landhelgisgæslunnar.

Mynd DS: Rauða ljósið er sett á skyggni farþegamegin inni í bílnum og blikkar þegar starfsmenn þyrluáhafna þurfa að komast greiðlega leiðar sinnar í útköll. Bílarnir eru einnig merktir með skilti sem á stendur ,,þyrluvakt".