Varðskipsmenn skipta um öldudufl út af Austfjörðum

Mánudagur 20. september 2004.

Það er afar mikilvægt fyrir sjófarendur að hafa upplýsingar um ölduhæð á þeim hafsvæðum sem þeir sigla um. Víða hefur öldumælisduflum verið komið fyrir og er hægt að fá upplýsingar um ölduhæð hjá Siglingastofnun og Veðurstofunni.

Varðskipsmenn sjá um að skipta út öldumælisduflum með vissu millibili.  Einnig kemur fyrir að öldumælisdufl tapast og þá þarf að koma nýjum fyrir.  Nauðsynlegt er að taka duflin í land endrum og sinnum til að skipta um rafhlöður í þeim og yfirfara þau áður en þeim er aftur komið fyrir úti á sjó.  Duflin eru í eigu Siglingastofnunar sem sér um að skoða þau og lagfæra.

Á meðfylgjandi mynd sem Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður tók nýlega undan Kögri á Austfjörðum eru hásetarnir á Ægi, Jóhannes Ægisson og Jóhann Örn Sigurjónsson að skipta um dufl á legufærum.  Þeir eru búnir að ná duflinu um borð og eru að undirbúa að koma nýju fyrir.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.