Northern Challenge 2004, fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita, að hefjast

Föstudagur 27. ágúst 2004.

 

Fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge 2004, hefst mánudaginn 30. ágúst og stendur til 3. september næstkomandi.  Landhelgisgæslan stendur fyrir æfingunni í samvinnu við Varnarliðið.

 

Þetta er í þriðja skipti sem Northern Challenge-æfingin er haldin og sú umfangsmesta hingað til.  Sérstök áhersla verður lögð á siglinga- og hafnarvernd en eins og kunnugt er voru nýlega samþykkt lög um siglingavernd á Íslandi vegna alþjóðlegra krafna um öryggi skipa, hafna og farmsendinga milli landa.  Í þeim tilgangi verða prófaðar aðferðir og tækni til að bregðast við hryðjuverkasprengingum í höfnum og um borð í skipum.  Einnig verða æfð viðbrögð við sprengjum á flugvöllum. 

 

Að minnsta kosti 130 viðfangsefni verða sett á svið fyrir sprengjusérfræðingana til að bregðast við.  Sjö erlendar sprengjueyðingarsveitir taka þátt í æfingunni en þær eru frá Danmörku, Noregi, Bretlandi og Bandaríkjunum.  Allar sveitirnar hafa sprengjueyðingu að aðalstarfi og hafa flestar þeirra starfað á átakasvæðum, m.a. í Írak, Afganistan, á Balkanskaga og á Norður Írlandi auk þess að sjá um viðbrögð við hryðjuverkum í sínu heimalandi.

 

Gott samstarf við Varnarliðið, lögreglu og öryggisfulltrúa á Keflavíkurflugvelli er nauðsynlegt svo að æfingin heppnist vel.  Mörg sviðsettu viðfangsefnin eiga sér stað á Keflavíkurflugvelli og í höfnum á Reykjanesi og eru því áhugaverð fyrir þá sem starfa að varnar- og öryggismálum á Íslandi.

 

Sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar sér lögum samkvæmt um sprengjueyðingu á Íslandi og sér einnig alfarið um sprengjueyðingu fyrir Varnarliðið.  Að mati sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar er mjög mikilvægt að halda slíkar æfingar til að viðhalda þekkingu og þjálfun og fylgjast með nýjustu tækni á þessu sviði.  Æfingar eins og Northern Challenge veita sprengjusérfræðingum tækifæri til að starfa við aðstæður sem eru eins raunverulegar og frekast er unnt, prófa tæki og tækni og læra hver af öðrum. 

 

Dagmar Sigurðardóttir

fjölmiðlaftr.