Landhelgisgæslan skipuleggur fjölþjóðlega æfingu sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge

Mánudagur 7. júní 2004.

Landhelgisgæslan hefur undanfarin tvö ár skipulagt fjölþjóðlega æfingu sprengjueyðingarsveita hér á landi og hefur hún gengið undir heitinu ,,Northern Challenge” eða ,,Norræn áskorun”.

Erlendir sprengjusérfræðingar sem hafa tekið þátt í æfingunni hafa verið ánægðir með þá fræðslu og þann árangur sem æfingarnar hafa skilað og verður æfingin haldin í þriðja sinn í ár, nánar tiltekið frá 30. ágúst – 3. september nk.

Að þessu sinni mun æfingin snúast um að æfa viðbrögð við hryðjuverkasprengingum og skemmdarverkum. Þegar hafa sjö sveitir sprengjusérfræðinga frá Atlantshafsbandalaginu tilkynnt þáttöku.  Þær hafa meðferðis nýjustu tæki til sprengjueyðingar, þ.á.m. eitt af nýjustu vélmennum sem notuð eru í þessum tilgangi.

Sumar þáttökusveitanna hafa nýlega starfað í Afganistan og Írak þar sem sprengjur hafa kostað marga saklausa borgara og sprengjusérfræðinga lífið.

Æfingin verður haldin í samstarfi við utanríkisráðuneytið og Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli.  Sérstök áhersla verður lögð á það verkefni að tryggja hafnarsvæði gegn hugsanlegri vá sem stafar af sprengjum og hryðjuverkum.  Yfirmennn sprengjudeilda danska og norska sjóhersins munu sjá um þann þátt æfingarinnar.

Sjá nýjar myndir á heimasíðunni af Adrian King og Jónasi Þorvaldssyni sprengjusérfræðingum hjá Landhelgisgæslunni er þeir voru við störf í Írak.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.