Björgun Baldvins Þorsteinssonar heppnaðist í nótt
Miðvikudagur 17. mars 2004.
Björgun fjölveiðiskipsins Baldvins Þorsteinssonar úr strandi heppnaðist í nótt. Um miðnættið byrjuðu ýtur í landi og norski dráttarbáturinn Normand Mariner að snúa skipinu. Það tók um 20-25 mínútur og gekk vel.
Að því loknu var byrjað að toga í skipið. Dráttarbáturinn togaði með 170 tonna álagi þegar mest var. Baldvin Þorsteinsson losnaði af sandrifinu utan við ströndina rétt fyrir kl. tvö í nótt.
Útgerð Baldvins Þorsteinssonar, Samherji, hefur lagt mikið fé og vinnu í að bjarga skipinu og hefur Landhelgisgæslan átt gott samstarf við útgerðina. Að vonum ríkti mikil gleði á strandstað í nótt. Dráttarbáturinn er á leið til Eskifjarðar með Baldvin Þorsteinsson í togi.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.