Landhelgisgæslan og Varnarliðið gera samning um samræmdar verklagsreglur vegna þyrluflugs með nætursjónauka

Miðvikudagur 11. febrúar 2004.

Í gær gerði Landhelgisgæslan samning við Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli um samræmdar verklagsreglur vegna þyrluflugs með nætursjónaukum.

Þegar flugdeild Landhelgisgæslunnar hóf notkun nætursjónauka í þyrluflugi var ljóst að hafa varð náið samráð við Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Þyrlur beggja aðila fljúga oft og tíðum á óhefðbundnum flugleiðum þar sem flugumsjón nær ekki að fylgjast með þeim og við vissar aðstæður verður að slökkva á siglingarljósum þyrlanna til að trufla ekki nætursjónaukana. Báðum aðilum var því ljóst að semja varð samræmdar verklagsreglur til að koma í veg fyrir að hætta skapaðist.

Á fyrri hluta síðasta árs hófust viðræður um hvernig staðið skyldi að gagnkvæmum tilkynningum um nætursjónaukaflug, bæði flug sem ákveðið er með fyrirvara og björgunar- eða sjúkraflug sem ákveðið er í skyndi. Einnig varð að komast að samkomulagi um hvernig fjarskiptasambandi skyldi komið á milli þyrla Landhelgisgæslunnar og Varnarliðsins ef til þess kæmi að þyrlurnar væru samt sem áður á flugi í grennd við hvor aðra.

Eftir að sumarið gekk í garð og ekki var þörf á notkun nætursjónauka um nokkurt skeið frestaðist að ganga frá samkomulagi um samræmdar verklagsreglur. Þegar haustaði og skyggja tók að nýju var unnið eftir reglunum sem búið var að semja. Það var þó mikilvægt formsatriði að ganga frá skriflegri undirritun en hún fór fram í höfuðstöðvum Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Einnig var farið yfir ýmsa þætti reglnanna og gengið úr skugga um að báðir aðilar túlkuðu þær á sama veg.

Fulltrúar Landhelgisgæslunnar voru Sigurður Steinar Ketilsson yfirmaður gæsluframkvæmda, Benóný Ásgrímsson flugrekstrarstjóri og yfirflugstjóri, Hjalti Sæmundsson aðalvarðstjóri í stjórnstöð, Ásgrímur Ásgrímsson deildarstjóri sem sér um samskipti við Varnarliðið og Thorben Lund yfirstýrimaður í flugdeild.

Frá Varnarliðinu voru John J. Waickwicz flotaforingi og yfirmaður Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, Thomas Thompson ofursti, næstæðsti yfirmaður Varnarliðsins, Steven Dreyer ofursti, næstæðsti yfirmaður flughersins í Keflavík, David Duke yfirmaður þyrlusveitar Varnarliðsins, Jarrod Stundahl samskiptafulltrúi Varnarliðsins við Landhelgisgæsluna og Kevin L. Smith ofursti, yfirmaður deildar Varnarliðsins sem sér um skipulag og stefnumörkun og Toby Myers undirforingi í aðgerðadeild.

Sjá meðfylgjandi myndir sem Ásgrímur Ásgrímsson deildarstjóri tók við undirritun samningsins.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.

Kevin L. Smith ofursti, yfirmaður deildar Varnarliðsins sem sér um skipulag og stefnumörkun og Sigurður Steinar Ketilsson yfirmaður gæsluframkvæmda undirrita samninginn. Í baksýn eru Steven Dreyer ofursti, næstæðsti yfirmaður flughersins í Keflavík, David Duke yfirmaður þyrlusveitar Varnarliðsins og Jarrod Stundahl samskiptafulltrúi Varnarliðsins við Landhelgisgæsluna.

Benóný Ásgrímsson flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar og Hjalti Sæmundsson aðalvarðstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar standa við samningaborðið þar sem Smith ofursti og Sigurður Steinar Ketilsson yfirmaður gæsluframkvæmda ganga frá pappírsmálum.