Jólasveinar ferðast með þyrlu - Myndir frá jólatrésskemmtun starfsmannafélags LHG

Miðvikudagur 17. desember 2003.

Hér má sjá myndir sem Reynir Brynjarsson flugvirki hjá Landhelgisgæslunni tók á jólatrésskemmtun starfsmannafélags Landhelgisgæslunnar um síðustu helgi en hún var haldin í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli. Eins og sjá má á myndunum notuðu jólasveinarnir mjög nútímalegan ferðamáta og komu í þyrlu, þó ekki þyrlu Landhelgisgæslunnar.  Það voru þeir Gáttaþefur og Stekkjastaur sem komu að þessu sinni.  Gáttaþefur sá um gamanmál og síðan dönsuðu þeir báðir við börnin í kringum jólatréð.  Börnin skemmtu sér konunglega.

Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.