Skipstjóri staðinn að veiðum án veiðileyfis
Handhafar löggæsluvalds í áhöfn varðskipsins Óðins stóðu skipstjóra að meintum ólöglegum veiðum í gærdag.
Er varðskipið kom að skipinu var áhöfnin að netaveiðum. Varðskipsmenn komust að því við venjulegt eftirlit að skipið hafði ekki veiðileyfi. Skipstjóra var gert að halda þegar til hafnar á Ísafirði þar sem lögreglan tók við rannsókn málsins.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.