Jólaveisla Landhelgisgæslunnar
Föstudagur 12. desember 2003.
Árleg jólaveisla Landhelgisgæslunnar var haldin í hádeginu í dag. Flestir starfsmenn Landhelgisgæslunnar, að frátöldum fjarverandi varðskipsáhöfnum, mættu í Borgartún 6 og gæddu sér á hangikjöti með öllu tilheyrandi og fengu jólagraut (ris a la mande) með möndlugjöf í eftirrétt. Áður en hádegisverður var snæddur var jólaguðspjallið lesið.
Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður var svo heppinn að fá möndlugjöfina að þessu sinni en hann sá einnig um að taka meðfylgjandi myndir úr jólaveislunni.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlafulltrúi
Hjalti Sæmundsson aðalvarðstjóri í stjórnstöð, Steinn Kjartansson aðstoðarm. á flugvelli, Hilmar Þórarinsson yfirflugvirki, Ragnar M. Georgsson fulltrúi, Steinvör Gísladóttir ritari forstjóra.
Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri ásamt Gunnari Bergsteinssyni fyrrverandi forstjóra.
Páll Halldórsson fyrrverandi flugstjóri, Dagmar Sigurðardóttir lögfræðingur/fjölmiðlaftr., Kristján Þ. Jónsson skipherra, Sigríður Sverrisdóttir starfsmannastjóri, Steinvör Gísladóttir ritari forstjóra, Magnús Gunnarsson fjármálastjóri.
Pétur Steinþórsson flugstjóri, Sigurjón Sverrisson flugstjóri, Hafsteinn Heiðarsson flugstjóri og Sigríður Sverrisdóttir starfsmannastjóri.
Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri afhendir Jóni Páli Ásgeirssyni stýrimanni möndlugjöfina.