Sjúkraflug með veikt barn
Miðvikudagur 29. október 2003.
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í nótt vegna beiðni læknis á Ólafsvík um flutning veiks barns með þyrlu. TF-LIF fór í loftið kl. 3:41 og lenti á Rifi kl. 4:21. Átta mínútum síðar var þyrlan komin aftur í loftið með barnið og móður þess og lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 5:10. Þar beið sjúkrabíll eftir barninu og flutti það á Landspítala Háskólasjúkrahús.