Sjúkraflug til Vestmannaeyja
Þriðjudagur 16. september 2003.
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 17:59 vegna alvarlega veiks manns í Vestmannaeyjum. Læknir á staðnum taldi nauðsynlegt að sækja hann strax með þyrlu. Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 18:21.
TF-LIF lenti í Vestmannaeyjum kl. 18:43 en ekki var hægt að flytja manninn strax. Hélt þyrlan með hann til Reykjavíkur kl. 19:24. Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 19:50 þar sem sjúkrabíll beið og flutti manninn á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi