Vorboðarnir á miðunum
Föstudagur 11. apríl 2003.
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SYN fór í dag í eftirlitsflug út að 200. sml. lögsögumörkunum á Reykjaneshrygg. Þrettán erlendir togarar voru þar að karfaveiðum. Það má því segja að vorboðarnir, karfaveiðiskipin, séu komnir. Sjá meðfylgjandi myndir sem Auðunn F. Kristinsson stýrimaður í flugdeild Landhelgisgæslunnar tók í dag.
Landhelgisgæslu Íslands