Myndir frá björgun Polarsyssel
Fimmtudagur 10. apríl 2003.
Meðfylgjandi myndir voru að berast frá varðskipinu sem kom til bjargar norska selveiðiskipinu Polarfangst í gær. Á fyrri myndinni má sjá þegar varðskipið tók Polarsyssel í tog við ísröndina, 36 sjómílur undan strönd Grænlands. Á seinni myndinni má sjá þegar varðskipsmenn fóru á léttbát með dælur yfir í Polarsyssel. Skipið sem er nær er norska selveiðiskipið Polarfangst en TF-LÍF sótti fótbrotinn skipverja úr áhöfn þess um borð í varðskipið í nótt.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands