Spænsk eftirlitsflugvél skoðuð
Föstudagur 27. desember 2002.
Nýlega kom hingað til landsins eftirlits- og herflutningavél af gerðinni Casa C-295 en þetta er nýjasta tegund eftirlitsflugvéla EADS flugvélaverksmiðjanna á Spáni. Flugvélin var á leið úr kynningarferð í Bandaríkjunum en strandgæslan þar í landi gekk nýverið frá kaupum á 25 slíkum vélum. Starfsmönnum Landhelgisgæslunnar bauðst að kynna sér vélina á meðan viðdvöl hennar stóð.
Casa C-295 er sérstaklega hönnuð sem eftirlits- leitar- og herflutningaflugvél. Hún hefur mikla burðargetu, 12 klst. flugþol, góða fluggetu og afragðs stuttbrautareiginleika enda þarf hún fulllestuð aðeins um 844 metra langa flugbraut til flugtaks og 680 metra til lendingar. Aftan á vélinni er stór innkeyrsluhurð (
Vélin er vel búin tækjum og má nefna:
a) 360° ratsjá sem getur fylgst með ( plottað ) allt að 100 skipum í einu.
b) FLIR / TV ( Innrauðri myndbands upptökuvél ), þ.e. sambyggð innrauð myndavél og myndbandstökuvél. Þetta gerir áhöfninni kleift að fylgjast með skipum úr nokkuri fjarlægð hvort sem er að degi eða nóttu og er hægt að lesa nafn og númer meðalstórs togara í 4-6 sml. fjarlægð.
c) Mengunarratsjá, sem skynjar olíu í sjó sem mannsaugað nemur ekki, auk þess sem ratsjáin reiknar út áætlað magn olíu í sjónum.
d) Fullkominni siglingartölvu.
e) Gervihnatta-fjarskiptatæki.
Þessum tækjum er stjórnað af siglingarfræðingum og fjarskiptamönnum á þremur til fjórum borðum aftarlega í vélinni.
Aftan við stjórnborðin eru sérhannaðir kúptir gluggar fyrir ,,útkíksmenn" sem veita sérstaklega gott útsýni úr vélinni. Þetta eykur verulega útsýni í leitarflugi og um leið afkastagetu vélarinnar. Þá er vélin búin tæki sem skýtur blysum. Í þessari útfærslu er hvíldar- og eða farþegarými fyrir sex til átta manns. Allur búnaður vélarinnar er í færanlegum einingum þannig að auðvelt er að breyta henni eftir eðli verkefna. Til að mynda má setja í hana sæti fyrir allt að 71 mann eða 24 börur.
Casa er nokkuð þekkt merki á sviði eftirlits- og strandgæsluflugvéla og meðal þjóða sem nota Casa til strandgæslu eru Svíar, Pólverjar, Spánverjar og Bandaríkjamenn að ógleymdum nágrönnum okkar Írum sem eru með fjórar Casa C-235 til strandgæslu í lögsögu sinni sem er þó töluvert minni en 200 sml. fiskveiðilögsaga okkar Íslendinga.
Að mati starfsmanna Landhelgisgæslunnar sem skoðuðu Casa-vélina er hún álitlegur kostur fyrir stofnunina þegar farið verður að huga að endurnýjun Fokker-flugvélar Landhelgisgæslunnar sem er orðin 27 ára gömul. Casa-vélin eyðir t.d. helmingi minna eldsneyti og tækjabúnaðurinn er eins og best verður á kosið.
Landhelgisgæslu Íslands