Tíu milljóna gjöf í sjóð til kaupa á nætursjónaukum
Föstudagur 13. desember 2002.
Landhelgisgæslunni barst í dag minningargjöf sem nemur 10 milljónum króna í sjóð sem stofnaður var vegna söfnunar fyrir nætursjónaukum, nauðsynlegum fylgibúnaði og þjálfun flugáhafna til notkunar á sjónaukunum. Gefendur óskuðu nafnleyndar að svo stöddu.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands