Varðskip á leið til bjargar norskum rækjutogara
Föstudagur 20. september 2002.
Áhöfn norska rækjutogarans Volstad Viking varð vör við það um þrjúleytið í fyrrinótt að lestir skipsins höfðu fyllst af sjó en þetta virðist hafa gerst all skyndilega. Skipið var þá statt 80 sjómílur frá strönd Austur Grænlands. Áhöfninni var bjargað um borð í annan norskan rækjutogara, Sæviking, sem nú er á staðnum.
Fulltrúar norsku útgerðarinnar og tryggingafélags skipsins hér á landi höfðu samband við Landhelgisgæsluna í gær og óskuðu eftir aðstoð við að draga skipið til hafnar. Í framhaldi af því var ákveðið að senda varðskip á staðinn og er gert ráð fyrir að það verði komið að skipinu annað kvöld.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands