Leit að ítalska ferðamanninum bar engan árangur

Mánudagur 26. ágúst 2002.

Á laugardaginn leitaði þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, í Gjögurfjalli, Þorkelsfirði og víðar að ítalska ferðamanninum Davide Paite að beiðni lögreglunnar á Akureyri.  Fjöldi björgunarsveitarmanna, m.a. með hunda, leituðu á svæðinu frá Grenivík út á Látraströnd en leitin bar engan árangur.

Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands