Sleginn í höfuðið með flösku
Laugardagur 17. ágúst
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. fimm um morguninn vegna slasaðs manns í Stykkishólmi. Hann hafði verið fluttur á spítala eftir að hafa verið sleginn í höfuðið með flösku og óskaði læknir eftir þyrlu til að flytja hann á sjúkrahús í Reykjavík. TF-SIF fór í loftið um hálftíma síðar og lenti í Stykkishólmi kl. 6. Var maðurinn kominn á Landspítala Háskólasjúkrahús um kl. 6:30.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands