Samverði 2002 lýkur í dag
Sunnudagur 30. júní 2002.
Skipulag æfingarinnar Samvörður 2002 hefur gengið upp að mestu leyti þrátt fyrir að veður hafi á köflum sett strik í reikninginn hvað þyrluflug varðar. Stjórnendur og þátttakendur hafa þannig fengið þjálfun í að bregðast við breyttum aðstæðum og mál manna að af æfingunni megi draga mikilvægan lærdóm.
Fjölmiðlafólki, innlendu og erlendu, var boðið að kynnast æfingunni af eigin raun í gær. Farið var í þyrluflug frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja með Chinook þyrlu þjóðvarðliðs Pensylvaníu. Sýnd var rústabjörgun í fiskvinnsluhúsi niður við höfn þar sem aðstæður höfðu verið gerðar eins raunverulegar og mögulegt var. Þangað komu forstjóri Landhelgisgæslunnar og aðmírállinn á Keflavíkurflugvelli til að kynna sér aðstæður en þeir eru framkvæmdastjórar æfingarinnar. Varnarmálaráðherra Belgíu var með þeim í för og heilsaði upp á samlanda sína sem voru þar að störfum.
Í Vestmannaeyjum bar einnig að líta hús sem hafði hrunið og fjölda hlutverkaleikenda sem höfðu fengið fyrirmæli um hvaða áverka þeir höfðu orðið fyrir og var búið að farða þá í samræmi við það. Leikhæfileikar hinna slösuðu vöktu athygli enda var hluti þeirra félagar í leikfélagi í leikfélagi í Vestmannaeyjum og þjáðust af mikilli innlifun. Fengu slasaðir flutning til Þorlákshafnar þar sem gert var að sárum þeirra. Sumir týndu þó lífinu og var m.a. eitt bráðlifandi lík með fjölmiðlafólki í för er haldið var til Þorlákshafnar með þyrlu eftir heimsókn til Vestmannaeyja í gær.
Í dag hefur verið lögð áhersla á að ljúka verkefnum og ákveðið hefur verið að hraða samantekt og flutningi þátttakenda frá Vestmannaeyjum vegna óhagstæðrar veðurspár. Samkvæmt skipulaginu á æfingunni formlega að ljúka um kl. 18 í dag.
Landhelgisgæslan vill koma á framfæri þakklæti til allra þátttakenda sem hafa lagt sitt af mörkum til að gera æfinguna sem veglegasta þ.e. undirbúningsaðilum, skipuleggjendum, þáttakendum í björgunarstörfum og hlutverkaleikendum.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands