Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyða tveimur sprengjum frá síðari heimsstyrjöld

Um klukkan 17:30 hafði vegfarandi samband við Landhelgisgæsluna en hann hafði þá fundið tvo hluti sem hann taldi vera sprengjur stutt frá Bláfjallaafleggjaranum hjá Sandskeiði og lét strax vita. Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar fór þegar á staðinn og við nánari skoðun sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar kom í ljós að um var að ræða annars vegar eldflaug sem margir þekkja undir nafninu Bazooka og hins vegar sprengjukúlu. Reyndust sprengjurnar vera frá síðari heimsstyrjöldinni en svæðið var notað sem æfingasvæði.

Eftir mat sprengjusérfræðinga á aðstæðum var ákveðið að loka þjóðvegi númer 1 og komu tveir lögreglubílar á svæðið til að framkvæma lokunina. Eyddu sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar sprengjunum og eftir það opnaði lögreglan aftur fyrir umferð.

Landhelgisgæslan þakkar fyrir árvekni þessa vegfaranda en hlutir sem þessir geta verið hættulegir og ætti fólk því ávallt að láta þá liggja óhreyfða og tilkynna tafarlaust um þá til Landhelgisgæslunnar.

 
Eldflaugin eða Bazooka.
 
Sprengjukúlan.