Staðinn að meintum ólöglegum veiðum

Ekki var um ásetningsbrot að ræða

20.4.2019 Kl: 18:10

Seint í gærkvöld urðu varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar þess varir að norska línuskipið Fiskenes, sem hefur veiðiheimild innan íslensku fiskveiðilögsögunnar, var búið að leggja línu inn fyrir mörk hryggningastoppsvæðisins sem er í gildi um þessar mundir samkvæmt reglugerð nr. 30 frá 2005. Samkvæmt henni eru allar veiðar bannaðar frá 12. apríl til og með 21. apríl innan ákveðinna marka suður og vestur af landinu.

Skipstjóra Fiskenes var gert að taka inn alla línuna og halda að því búnu til hafnar í Vestmannaeyjum. Þar tók lögregla á móti skipinu klukkan 15:00 í dag og var skýrsla tekin af áhöfninni í kjölfarið. Áður hafði Landhelgisgæslan farið fram á að útgerð skipsins leggði fram viðeigandi tryggingu vegna hugsanlegra sektargreiðslna þessara meintu ólöglegu veiða.

Tryggingin hefur verið lögð fram og staðfest þannig að ef skipstjóri Fiskenes gengst við broti við skýrslutöku er ekkert því til fyrirstöðu að skipið haldi til veiða á ný.

Nú fyrir stundu barst Landhelgisgæslunni tilkynning frá lögreglunni í Vestmannaeyjum þar sem fram kom að skýrslutöku væri lokið og játning lægi fyrir. Ekki var um ásetningsbrot að ræða heldur láðist skipstjóra og útgerð Fiskenes að kynna sér reglur um fiskveiðar. Skipið hélt því úr höfn í Vestmannaeyjum á sjöunda tímanum í kvöld.