TF-LIF flutti veikan skipverja á sjúkrahús

Skipið var statt um 40 sjómílur vestur af Bjargtöngum

  • TF-LIF-LIF

27.1.2019 Kl: 09:41

TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, flutti veikan skipverja á frystitogara á sjúkrahús í gærkvöld. Skipstjóri togarans hafði samband við Neyðarlínu vegna veikinda um borð og eftir samráð við þyrlulækni var ákveðið maðurinn yrði fluttur á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar. 

Skipið var þá statt um 40 sjómílur vestur af Bjargtöngum. TF-LIF tók á loft frá Reykjavík klukkan 18:30 og var komin rúmri klukkustund síðar að skipinu. Vel gekk að hífa skipverjann um borð í þyrluna. 

Sjólag og skyggni var gott og hægur vindur. Þyrlan flutti manninn á Landspítalann í Fossvogi og lenti þar laust fyrir klukkan níu í gærkvöld.