TF-SIF í verkefni fyrir Frontex

Flugvél LHG hélt í morgun áleiðis til Sikileyjar

TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hélt nú í morgun áleiðis til Sikileyjar en næstu vikurnar sinnir vélin og áhöfn hennar landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi fyrir Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu, Frontex. Ráðgert er að flugvélin verði á Ítalíu þar til í lok ágúst.

Verkefnið er liður í Tríton-áætlun Frontex sem hófst í árslok 2014. Markmið áætlunarinnar er meðal annars leit og björgun flótta- og farandfólks sem leggur á sig hættulegt ferðalag frá Afríku og Mið-Austurlöndum til Ítalíu. Yfirvöld á Ítalíu bera ábyrgð á framkvæmd áætlunarinnar en alls taka 25 aðildarríki Schengen-samstarfsins þátt í henni með því að leggja til starfsfólk og búnað, þar á meðal Ísland.

Að því er fram kemur í frétt á vef Frontex hafa 116.000 manns reynt að komast með ólögmætum hætti til Evrópu á fyrstu sex mánuðum þessa árs með því að sigla yfir Miðjarðarhaf. Þetta er 68 prósenta fækkun miðað við árið í fyrra þegar mikill fjöldi flóttafólks kom frá Tyrklandi yfir Eyjahafið. Þeirri leið hefur nú að mestu verið lokað. Fjöldi þeirra sem reynir að komast til Ítalíu hefur hins vegar vaxið. Það sem af er ári hafa 85.000 manns reynt að sigla til Ítalíu, rúmum fimmtungi fleiri en sama tímabil í fyrra. Flestir komu frá Nígeríu, Bangladess, Gíneu og Fílabeinsströndinni.

IMG_2783

Hólmar flugmaður skoðaði flugvélina vandlega fyrir brottför.

Landhelgisgæsla Íslands hefur undanfarin ár sinnt margvíslegum verkefnum fyrir Frontex, bæði með flugvélinni TF-SIF og varðskipunum Ægi og Tý. Fyrstu mánuði ársins var flugvélin við landamæraeftirlit með bækistöðvar á Krít og Sikiley. Til greina kemur að flugvélin fari aftur til Miðjarðarhafssvæðisins í lok þessa árs. 

Áhöfn Sifjar tilbúin til brottfarar. Frá vinstri: Hólmar Logi Sigmundsson flugmaður, Jakob Ólafsson flugstjóri, Friðrik Höskuldsson stýrimaður, Gunnar Örn Arnarson stýrimaður og Hilmar Þórarinsson flugvirki.