Þrjú þyrluútköll í dag

Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa þrívegis verið kallaðar út vegna slysa eða veikinda í dag.

  • Thyrla-ulfljotsvatn3

4.7.2018 Kl: 17:34

Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa þrívegis verið kallaðar út vegna veikinda eða slysa það sem af er degi. Á tólfta tímanum í dag var óskað eftir aðstoð vegna veikinda í Ólafsvík og hélt TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, á staðinn og sótti sjúklinginn. Þyrlan lenti við Landspítalann í Fossvogi laust fyrir eitt.

Klukkan hálf þrjú óskaði Neyðarlínan eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna konu sem slasaðist í Reynisfjöru. TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar, var send á staðinn og sótti konuna við Skógafoss. 

Þegar þyrlan tók á loft frá Skógafossi barst önnur beiðni frá Neyðarlínunni, nú vegna bílslyss við Úlfljótsvatn og aftur var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ákveðið var að TF-GNÁ héldi í átt að Úlfljótsvatni en TF-SYN var sömuleiðis kölluð út með hæsta forgangi og send á staðinn. Konan um borð í TF-GNÁ var lærbrotin og var ákveðið að hún færi með TF-SYN frá Úlfljótsvatni áleiðis á Landspítalann. Læknirinn um borð í TF-GNÁ gat því hugað að þeim sem lentu í bílslysinu á Úlfljótsvatni en þyrlan tók á loft þaðan með tvo slasaða klukkan 16:35 og lenti laust fyrir klukkan 17:00 við Landspítalann í Fossvogi.

Thyrlaulfljotsvatn2