Þyrlan bjargar forsetanum á 112-degi

Mikið um dýrðir á Hörputorgi og við Reykjavíkurhöfn á morgun

„Mikið hefur mætt á okkar fólki og starfsfólki og sjálfboðaliðum hinna ýmsu viðbragðsaðila að undanförnu. Nú viljum við nota 112-daginn til að gera okkur glaðan dag, bjóðum almenningi að hitta okkur við Reykjavíkurhöfn, skoða tækin okkar, spjalla og kynnast þessari mikilvægu starfsemi“, segir Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, en mikil dagskrá verður á vegum 112 og viðbragðsaðila í tilefni af 112-deginum, 11. febrúar, sem haldinn er um allt land ár hvert. 

Í dag stendur 112 ryrir ráðstefnu um þróun samskiptatækni og áhrif hennar á rekstur neyðarlínu og öryggi almennings. Fyrirlesarar eru meðal annars frá 911 í Bandaríkjunum og 112 í Evrópu. Ráðstefnan er haldin á Grand Hótel Reykjavík og hefst hún klukkan eitt. Ráðstefnustjóri er Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins.

Laugardaginn 11. febrúar verður tækjasýning á Hörputorgi og við Reykjavíkurhöfn kl. 13-16. Viðbragðsaðilar sýna margvíslegan búnað á Hörputorgi og almenningi er boðið að skoða varðskipið Þór og Sæbjörg, slysavarnaskóla sjómanna, við Faxagarð. Þá bjarga Slysavarnafélagið Landsbjörg og Landhelgisgæsla Íslands forseta Íslands úr Reykjavíkurhöfn um hálfþrjú. 

Hálftíma síðar hefst svo dagskrá í Flóa í Hörpu. Þar flytur Sigríður Á Andersen dómsmálaráðherra ávarp, verðlaun í eldvarnagetrauninni 2016 verða afhent og skyndihjálparmaður Rauða krossins verður útnefndur. Eva Björk Eyþórsdóttir og Ragna Björg Ársælsdóttir, starfsmenn bráðamóttöku LSH, syngja við undirleik Viðbragðssveitarinnar.

Við stöndum saman að 112-deginum 2017: 112, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Rauði krossinn á Íslandi, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Mannvirkjastofnun, Landspítali, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Ríkislögreglustjórinn, embætti landlæknis, Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, Barnaverndarstofa, Landhelgisgæsla Íslands, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land.