Varðskipið Þór til taks í Ísafjarðardjúpi

arðskipið Þór er til taks í Ísafjarðardjúpi ef á þarf að halda.

  • Thor

10.12.2019 Kl: 11:15

Varðskipið Þór er til taks í Ísafjarðardjúpi ef á þarf að halda en skipið hefur sinnt eftirliti á hafsvæðinu umhverfis landið undanfarna daga. Þá eru þyrlur Landhelgisgæslunnar sömuleiðis til taks í Reykjavík. Eins og gefur að skilja er lítil skipaumferð á Vestfjörðum. Fjögur skip eru undir Grænuhlíð og eitt tankskip er á leið fyrir Hornbjarg og fer suður með Vestfjörðum. 

Engin skipaumferð er á miðunum norður af landinu en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fylgist vel með skipaumferð umhverfis landið allt. 

Meðfylgjandi myndbönd voru tekin af áhöfn varðskipsins Þórs  þegar skipið var út af Dýrafirði snemma í morgun. Eins og sjá má var þá farið að hvessa hressilega á Vestfjarðamiðum og gekk sjórinn yfir varðskipið.

Varðskipið Þór á Vestfjarðamiðum

Varðskipið Þór í vonskuveðri


Áhöfnin á varðskipinu Þór tók meðfylgjandi mynd.