Varðskipið Týr dró fiskiskipið Kristínu GK til Hafnarfjarðar

Varð vélarvana um 30 sjómílur vest-norðvestur af Garðskaga

  • IMG_7184-2-Mynd-Gudmundur-St.-Valdimarsson

21.1.2019 Kl: 12:00

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð frá fiskiskipinu Kristínu GK síðdegis í gær en skipið var þá vélarvana um 30 sjómílur vest-norðvestur af Garðskaga. Varðskipið Týr var þá úti fyrir Keflavík og hélt þegar í átt að fiskiskipinu. Áhöfn varðskipsins skaut línu yfir í skipið á tíunda tímanum í gærkvöldi og hélt að því búnu með það áleiðis til Hafnarfjarðar. Varðskipið kom með skipið til Hafnarfjarðar snemma í morgun en hafnsögubáturinn Hamar tók þá við og fylgdi því síðasta spölinn að bryggju.  Meðfylgjandi myndir eru teknar af Guðmundi St. Valdimarssyni.

IMG_7133-2-Mynd-Gudmundur-St.-ValdimarssonKristín GK varð vélarvana 30 sjómílur vest-norðvestur af Garðskaga.IMG_7150-2-Mynd-Gudmundur-St.-ValdimarssonÁhöfn Týs undirbýr dráttinn.IMG_7184-2-Mynd-Gudmundur-St.-ValdimarssonTveir varðskipsmanna horfa í átt að Kristínu GK.IMG_7118-2-Mynd-Gudmundur-St.-ValdimarssonKristín GK var dregin til Hafnarfjarðar.IMG_7158-2-Mynd-Gudmundur-St.-ValdimarssonÁhöfn varðskipsins Týs.