Yfirmaður bandaríska sjóhersins heimsótti Keflavík

John Richardsson aðmíráll kynnti sér starfssemi Landhelgisgæslunnar í Keflavík.

  • Img_7575_1531227945176

10.7.2018 Kl: 13:10

John Richardsson aðmíráll, yfirmaður bandaríska sjóhersins, kom hingað til Íslands á dögunum og kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar í Keflavík. Ricardsson skoðaði aðstöðuna á Keflavíkurflugvelli og hitti bandaríska flugsveit sem stödd er hér á landi. Fulltrúar Landhelgisgæslunnar, utanríkisráðuneytisins og bandaríska sendiráðsins tóku á móti Richardsson við komuna til landsins.

Img_7574Richardsson ræddi við liðsmenn bandarískrar flugsveitar sem stödd er hér á landi tímabundið.

Img_7536Fulltrúar á vegum utanríkisráðuneytisins, Landhelgisgæslunnar og bandaríska sendiráðsins á Íslandi tóku á móti John Richardsson aðmíráli við komuna til landsins.

Img_7614