Fréttir

Fyrirsagnalisti

30. jan. 2004 : Slasað barn á Patreksfirði sótt með þyrlu

Föstudagur 30. janúar 2004.   Læknir á Patreksfirði hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 18 í dag og óskaði eftir þyrlu til að sækja barn sem hafði fengið alvarleg brunasár eftir heitt vatn.    Áhöfn TF-LIF var kölluð út kl. 18:03 og fór þyrlan í loftið frá Reykjavík kl. 18:57. Stjórnstöð upplýsti lögreglu á Patreksfirði um áætlaðan komutíma þyrlunnar svo unnt væri að flytja barnið með sjúkrabifreið á lendingarstað þyrlunnar.   TF-LIF lenti á enda brimvarnargarðsins á Patreksfirði kl. 19:55 og þar var barnið flutt um borð í þyrluna í fylgd móður þess.    Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 21:01 en þar beið sjúkrabifreið sem flutti barnið á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.       Lesa meira
 

26. jan. 2004 : Norsk og íslensk loðnuskip á miðunum

Mánudagur 26. janúar 2004. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, fór í eftirlitsflug yfir loðnumiðin í dag.  Alls hafa átta norsk loðnuskip tilkynnt sig inn í íslenska fiskveiðilögsögu.  Við eftirlit sáust fjögur þeirra á miðunum út af Héraðsflóa en hin fjögur hafa farið til hafnar til löndunar.  Einnig voru 17 íslensk skip að veiðum. Bræla hefur verið á miðunum um helgina. Eins og kunnugt er gaf sjávarútvegsráðuneytið út reglugerð um tímabundið bann við loðnuveiðum frá 15. janúar til 29. janúar en því banni var aflétt með reglugerð 20. janúar sl. Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.   Mynd: Tómas Helgason flugstjóri tók þessa mynd af norsku loðnuskipi í eftirlitsflugi yfir miðin í dag. Lesa meira
 

23. jan. 2004 : Sjúkraflug til Vestmannaeyja vegna veiks sjómanns

Föstudagur 23. janúar 2004. Neyðarlínan hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 22:44 í gærkvöldi og gaf samband við skipverja á togbátnum Kristni Friðrik GK-58 en þar hafði hjartveikur maður fallið í ómegin.  Skipið var þá statt út af Dyrhólaey. Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út með bráðaútkalli og fór þyrlan í loftið kl. 23:33.  Haldið var vestur fyrir Grindavík og þaðan austur um.  Frá Grindavík og austur að Þykkvabæ gekk á með þéttum skúrum og eldingum. Vindur mældist 40-45 hnútar og gekk ferðin seint. Þyrlan var komin að bátnum kl. 00:47 og var ekki talið ráðlegt að hífa sjúklinginn um borð í hana vegna veðurs og sjólags. Var þyrlunni þá flogið til Vestmannaeyja og lent þar kl. 1:08.  Þar var beðið eftir bátnum. Hélt þyrlan frá Vestmannaeyjum með sjúklinginn kl. 3:18 og lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 3:50.  Þaðan var sjúklingurinn fluttur með sjúkrabíl á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi. Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.   Lesa meira
 

11. jan. 2004 : Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu vegna nauðlendingar breskrar farþegaflugvélar

Sunnudagur 11. janúar 2004.   Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var sett í viðbragðsstöðu kl. 17:26 eftir að flugstjórn Flugmálastjórnar tilkynnti stjórnstöð Landhelgisgæslunnar að Boeing 767-300 farþegaflugvél á leið frá London til Bandaríkjanna hefði lýst yfir neyðarástandi eftir að reykjalykt fannst í farþegarými vélarinnar.  Flugvélin lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli kl. 18:22.    Þetta er í annað sinn á 5 dögum sem þyrluáhöfnin er kölluð út vegna farþegaflugvéla sem leið eiga um íslenskt flugstjórnarsvæði. Í fyrra skiptið var lýst yfir neyðarástandi í erlendri farþegaflugvél vegna elds í hreyfli.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlafulltrúi. Lesa meira
 

10. jan. 2004 : Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar finna torkennilegar sprengjur í Írak- Spurning hvort um efnavopn er að ræða

Laugardagur 10. janúar 2004 Í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu í dag kemur eftirfarandi fram: ,,Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar sem starfa á vegum Íslensku friðargæslunnar í suðurhluta Íraks, við hlið dansks herliðs, fundu í gær verulegt magn af sprengjuvörpukúlum sem innihalda torkennilegan vökva. Kúlurnar höfðu verið faldar í uppbyggingu á vegarspotta.  Breskir sérfræðingar vinna nú að nánari efna- og aldursgreiningu og gert er ráð fyrir niðurstöðum síðar í dag.Sprengjusérfræðingarnir voru kallaðir á vettvang skammt frá borginni Basra við ána Tígrís til að gera óvirkar sprengjur sem þar voru sjáanlegar. Við frekari rannsókn þeirra fannst talsverður fjöldi sprengjuvörpukúlna og fyrstu mælingar bentu til að ekki væri um hefðbundnar sprengjuhleðslur að ræða. Mælingar danskra sprengjusérfræðinga staðfestu þetta og í framhaldinu voru breskir sérfræðingar kallaðir á vettvang til nákvæmari greiningar og þeim til stuðnings hefur einnig verið ákveðið að senda þangað hreyfanlega bandaríska efnarannsóknarstöð.Frekari upplýsingar um þennan fund íslensku sprengjusérfræðinganna verða veittar um leið og þær berast frá Írak sennilega síðar í dag." Hér má sjá myndir af okkar mönnum við störf í Írak.    Lesa meira
 

07. jan. 2004 : Sjúkraflug frá Patreksfirði til Reykjavíkur

Miðvikudagur 7. janúar 2004.   Læknir á Patreksfirði hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í dag og óskaði eftir aðstoð vegna veikrar konu á Tálknafirði sem nauðsynlegt var að flytja á sjúkrahús í Reykjavík. Ekki var hægt að fá sjúkraflug frá Ísafirði.   Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, fór í loftið kl. 15:41 og lenti á Patreksfirði kl. 17:03 en sjúklingurinn hafði verið fluttur þangað með sjúkrabifreið frá Tálknafirði..  Þyrlan fór frá Patreksfirði kl. 17:57 og lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 19:25.   Flugveður var all slæmt og skyggni rysjótt.  Norðaustan hvassviðri og mikil úrkoma mest alla leiðina.    Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlafulltrúi Lesa meira
 

05. jan. 2004 : TF-LIF flutti slasaðan sjómann á sjúkrahús

Mánudagur 5. janúar 2004.   Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 22:04 í gærkvöldi og gaf samband við netabát sem staddur var 5 sjómílur vestur af Garðskaga. Þar hafði sjómaður slasast illa á báðum fótum.   Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var þegar kölluð út með bráðaútkalli og fór TF-LIF í loftið 27 mínútum síðar eða kl. 22:31.  Búið var að hífa sjómanninn um borð í þyrluna kl. 23:26 og lenti TF-LIF við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 23:38.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlafulltrúi Lesa meira
 

03. jan. 2004 : Sjúklingur fluttur með þyrlu frá Rifi til Reykjavíkur

Laugardagur 3. janúar 2004.   Læknir á Ólafsvík hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:42 og óskaði eftir að þyrla sækti alvarlega veika konu.  Læknir í áhöfn TF-SIF fékk allar upplýsingar og taldi nauðsynlegt að sækja hana með þyrlu.    Áhöfn TF-SIF var kölluð út kl. 12:47 og fór þyrlan í loftið kl. 13:17.  Lent var á Rifi kl. 13:48 þar sem konan beið í sjúkrabifreið og hélt þyrlan af stað með hana til Reykjavíkur kl. 13:59.    Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 14:45 en þaðan var konan flutt með sjúkrabifreið á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.   Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlafulltrúi Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica