Fréttir

Fyrirsagnalisti

30. apr. 2004 : Þyrlulæknar halda áfram störfum

Föstudagur 30. apríl 2004. Landspítali Háskólasjúkrahús hefur gert samning við þyrlulækna um áframhaldandi störf í þyrlum Landhelgisgæslunnar. Samningi við þá hafði verið sagt upp og var útlit fyrir að þeir hættu störfum um mánaðarmótin.  Landhelgisgæslan fagnar því að mál þetta er komið í höfn. Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr. Lesa meira
 

27. apr. 2004 : Týsmenn stíga á land í Kolbeinsey

Þriðjudagur 27. apríl 2004.   Á meðfylgjandi myndum Jóns Páls Ásgeirssonar yfirstýrimanns á varðskipinu Tý má sjá hluta af áhöfninni standa á Kolbeinsey.  Þeir réðust til uppgöngu í eyjuna er varðskipið átti leið þar framhjá.  Eins og sést á myndunum er eyjan ekki stór og stöðugt er að brotna af henni aðallega norðan og austanverðri.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.       Lesa meira
 

26. apr. 2004 : Skipstjóri dragnótarbáts staðinn að meintum ólöglegum veiðum með of smáa möskva

Mánudagur 26. apríl 2004. Við rannsókn löggæslumanna varðskipsins Ægis um borð í dragnótarbát um helgina kom í ljós að möskvar dragnótarinnar voru of smáir.  Skipstjóra var gert að halda til hafnar í Grindavík þar sem lögregla hélt rannsókn málsins áfram.  Sýslumaðurinn í Keflavík tekur ákvörðun framhald málsins.  Þetta er í annað skipti á einni viku sem löggæslumenn á varðskipinu Ægi færa skip til hafnar vegna ólöglegra veiðarfæra.  Fyrra málið er til meðferðar hjá sýslumanninum á Höfn í Hornafirði. Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr. Lesa meira
 

23. apr. 2004 : Brandugla í heimsókn um borð í Ægi

Föstudagur 23. apríl 2004.   Nýlega var sagt frá því er smyrill flaug inn um brúargluggann á varðskipinu Tý og var þar í góðu yfirlæti um tíma. Annars konar fugl heimsótti varðskipið Ægi um daginn.  Þar lenti Brandugla þegar skipið var statt í SA-stormi um 50 sjómílur frá Hornafirði. Þar sem uglan virtist þreytt og hrakin ákváðu varðskipsmenn að fanga hana og koma henni til bjargar.  Var hún vistuð aftur í stjórnborðsgangi skipsins þar sem henni var fært hrátt nautakjöt og vatn.   Þegar til stóð að fanga ugluna flaug hún frá borði og hraktist undan vindi frá skipinu.  En hún virtist ekki ná að fljúga á móti storminum svo að skipherrann breytti lítillega um stefnu og tókst henni þá að lenda heilu og höldnu á framþilfarinu.   Varðskipsmenn höfðu samband við Ævar Pedersen fuglafræðing og staðfesti hann að um Branduglu væri að ræða.  Ævar benti á að Óskar J. Sigurðsson vitavörður í Stórhöfða hefði eflaust áhuga á að merkja fuglinn en hann hefur merkt fjöldann allan af fuglum, aðallega lunda.  Kom Óskar um borð í varðskipið í Vestmannaeyjum og merkti ugluna sem síðan var sleppt.  Hún flaug þegar til fjalls, frelsinu fegin.    Sjá meðfylgjandi myndir af branduglunni sem Guðmundur Valdimarsson bátsmaður á Ægi tók.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.     Mynd LHG/Guðmundur Valdimarsson: Uglan nýsest á framþilfarið.   Mynd LHG/Guðmundur Valdimarsson: Rafn Sigurðssson háseti á Ægi heldur á uglunni en Óskar vitavörður á Stórhöfða setur merki á fótinn.   Mynd LHG/Guðmundur Valdimarsson: Uglan komin með merkið á fótinn. Lesa meira
 

19. apr. 2004 : Vanmannað skip með ólögleg veiðarfæri fært til hafnar

Mánudagur 19. apríl 2004.Löggæslumenn frá varðskipinu Ægi fóru um borð í skip út af Austurlandi fyrir helgina til reglubundins eftirlits og komust að raun um að skipið var vanmannað og um borð í því voru ómerktir netadrekar.  Skipstjóra var gert að sigla til Hafnar í Hornafirði þar sem lögreglan á staðnum hélt rannsókn áfram. Sýslumaðurinn á Höfn er með málið til meðferðar. Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr. Lesa meira
 

19. apr. 2004 : Skipstjórnarmenn Landhelgisgæslunnar á sjúkraflutninganámskeiði

Mánudagur 19. apríl 2004.   Skipstjórnarmenn Landhelgisgæslunnar fara reglulega á námskeið í sjúkraflutningum.  Það hefur oft komið sér vel hversu vel skipstjórnarmenn Landhelgisgæslunnar eru að sér í fyrstu hjálp, bæði vegna starfa þeirra um borð í varðskipunum og í þyrlunum. Komið hefur fyrir að varðskip hafa flutt slasaða eða veika sjómenn til næstu hafnar og skipstjórnarmenn á varðskipunum gera þá nauðsynlegar ráðstafanir, jafnvel í samráði við lækni símleiðis eða með öðrum fjarskiptum.   Skipstjórnarmenn starfa jafnframt sem sigmenn um borð í þyrlum Landhelgisgæslunnar en eins og kunnugt er hafa þær það hlutverk að sækja slasaða eða alvarlega veika sjómenn út á haf.  Einnig eru þyrlurnar sendar út á land til að sækja sjúka og slasaða af sjúkrahúsum þar þegar samningsbundnu sjúkraflugfélögin geta ekki séð um það t.d. vegna veðurs. Síðast en ekki síst eru þyrlurnar sendar út á land þegar alvarleg umferðarslys eða önnur slys eiga sér stað.    Þrátt fyrir að læknir sé ávallt í þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar hefur verið talið nauðsynlegt að skipstjórnarmenn hafi þessa þekkingu og geti brugðist rétt við í neyðartilvikum.  Sjá meðfylgjandi myndir af skiptjórnarmönnum Landhelgisgæslunnar þegar þeir sóttu endurmenntunarnámskeið í sjúkraflutningum og fyrstu hjálp (EMT-B réttindi) hjá Sjúkraflutningaskólanum.  Gunnar Örn Arnarson stýrimaður á Tý tók myndirnar.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.   Mynd LHG/GÖA: Magnús Örn að hreinsa öndunarveg með þar til gerðri töng.     Mynd LHG/GÖA: Aftari röð frá hægri: Magnús Örn Einarsson, Thorben Lund og Gunnar Örn Arnarson skipstjórnarmenn frá Landhelgisgæslunni. Fremri röð frá hægri: Jóhannes  frá tollgæslunni, Brynjar bráðatæknir og leiðbeinandi frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Auðunn Friðrik Kristinsson skipstjórnarmaður frá Landhelgisgæslunni. Lesa meira
 

19. apr. 2004 : Sjúkraflug TF-LIF í þýskan togara á Reykjaneshrygg

Mánudagur 19. apríl 2004. TF-LIF sótti í dag hjartveikan sjómann af þýska togaranum Eridanus sem staddur var á Reykjaneshrygg um 210 sjómílur suðvestur af Reykjavík. Sjúklingurinn var fluttur til Reykjavíkur þar sem hann var hann lagður inn á sjúkrahús. Hringt var í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar frá togaranum kl. 14:41 í dag og óskað eftir aðstoð vegna skipverja sem talið var að væri með einkenni hjartaáfalls. Togarinn var þá á siglingu í átt til Reykjavíkur. Stjórnstöð hafði þegar samband við áhöfn TF-LIF sem var í æfingaflugi og lét vita um sjúklinginn. TF-LIF var þá flogið til Reykjavíkur og sjúkraflug undirbúið. Læknir í áhöfn TF-LIF hafði náð sambandi við togarann og fengið upplýsingar um sjúklinginn sem var í nokkuð stöðugu ástandi eftir að hafa fengið viðeigandi lyf. TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, var í eftirlitsflugi á Reykjaneshrygg og aðstoðaði við að fá upplýsingar um stað, stefnu og hraða skipsins en fjarskiptasamband var nokkuð stopult. TF-SYN lenti á Reykjavíkurflugvelli kl. 16:57. TF-LIF fór í loftið kl. 18:31 og var ákveðið að TF-SYN myndi fylgja þyrlunni öryggisins vegna. TF-LIF kom að togaranum kl. 20:07 og var hífingu lokið kl. 20:16. TF-LIF lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 22:19 en TF-SYN lenti nokkrum mínútum fyrr. Á flugvellinum beið sjúkrabíll og flutti sjúklinginn á Landspítala Háskólasjúkrahús. Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlafulltrúi. Mynd LHG:  Hífing undirbúin um borð í Eridanus. Myndin er tekin frá TF-LIF. Lesa meira
 

16. apr. 2004 : Nýr flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni fór sitt fyrsta flug í dag

Föstudagur 16. apríl 2004. Meðfylgjandi myndir voru teknar um fjögurleytið í dag er Sigurður Ásgeirsson þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni var að fara í sitt fyrsta flug sem flugstjóri.  Sigurður hefur starfað hjá Landhelgisgæslunni frá því í apríl 1997 og hefur verið í flugstjóraþjálfun undanfarið, m.a. í Marseille í Frakklandi.  Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri fór í flugið með Sigurði eins og sjá má á mynd af áhöfninni.   Eins og venja er hjá Landhelgisgæslunni er ekki leyfilegt að segja hvert ferðinni er heitið vegna fiskveiðieftirlits og fl.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlafulltrúi.     Mynd LHG/DS: Sigurður Ásgeirsson flugstjóri og Björn Brekkan Björnsson flugmaður undirbúa sig undir flugtak. Mynd LHG/DS: Frá vinstri Magnús Örn Einarsson stýrimaður/sigmaður, Tómas Vilhjálmsson flugvirki/spilmaður, Bergur Stefánsson læknir, Björn Brekkan Björnsson flugmaður, Sigurður Ásgeirsson flugstjóri og Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri.     Mynd LHG/DS: Björn Brekkan Björnsson flugmaður, Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri og Sigurður Ásgeirsson flugstjóri.       Mynd LHG/JPÁ:  Magnús Örn Einarsson stýrimaður/sigmaður á æfingu sem haldin var að kvöldi 14. apríl sl. með áhöfn varðskipsins Týs en það var einmitt liður í flugstjóraþjálfun Sigurðar að æfa hífingar við varðskipið. Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður tók myndina.   Lesa meira
 

14. apr. 2004 : Erlend karfaveiðiskip á Reykjaneshrygg

MIðvikudagur 14. apríl 2004.   Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, fór í eftirlitsflug yfir Reykjaneshrygg í dag.  Alls sáust 20 togskip og eitt spænskt eftirlitsskip rétt utan við 200 sjómílna lögsögumörkin S-V af Reykjanesi.  Skipin eru að karfaveiðum en þau eru frá Rússlandi, Noregi, Spáni, Dóminíku og Portúgal.   Sjá meðfylgjandi myndir sem Tómas Helgason flugstjóri tók í dag af skipum á svæðinu.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.       Lesa meira
 

06. apr. 2004 : Viðvörunarskilti sett upp á Vogaheiði vegna ósprunginna sprengja frá seinni heimstyrjöldinni

Þriðjudagur 6. apríl 2004. Í gær voru endurnýjuð viðvörunarskilti við gamalt skotæfingasvæði bandaríska hersins á Vogaheiði.  Einnig voru sett upp ný skilti og enn á eftir að bæta nokkrum við. Það er full ástæða til að vara almenning við þeirri hættu sem getur stafað af gömlum sprengjum á svæðinu.  Þær hafa fundist í miklu magni á Vogaheiði sem er vinsælt útivistarsvæði. Bandaríski herinn stóð fyrir mikilli leit á svæðinu árið 1986 í samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.  Aftur var hafist handa við að leita að sprengjum á svæðinu árið 1996 og í fyrra stóð Landhelgisgæslan fyrir nokkuð ítarlegri leit.  Alls hafa fundist u.þ.b. 800 ósprungnar sprengjur á svæðinu síðan 1986 og telja sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar víst að þar sé enn mikið magn af sprengjum. Sprengjurnar eru yfirleitt undir jarðveginum en geta komið upp á yfirborðið þegar rignt hefur um tíma eða vegna annarra jarðvegsbreytinga. Ef fólk finnur torkennilega hluti á svæðinu er mikilvægt að snerta þá ekki, merkja staðinn og láta lögreglu eða sprengjudeild Landhelgisgæslunnar vita. Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr. Mynd/Landhelgisgæslan: Hluti af þeim sprengjum sem fundust í fyrra.   Lesa meira
 

05. apr. 2004 : Góður gestur um borð í varðskipi

Mánudagur 5. apríl 2004. Gunnari Erni stýrimanni og Hreini háseta á varðskipinu Tý brá nokkuð í brún á 4-8 vaktinni dag nokkurn fyrir skömmu þegar smyrill flaug skyndilega inn um brúargluggann.  Skipið var þá statt á Selvogsbanka við eftirlit. Smyrillinn var mjög sprækur og líkaði vel um borð í varðskipinu.  Hann var með varðskipsmönnum í stuttan tíma þar til honum var sleppt við land.  Sjá meðfylgjandi myndir Jóns Páls Ásgeirssonar yfirstýrimanns.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.     Smyrillinn hnarreistur á miðunarskífu varðskipsins.   Guðjón Finnbogason bryti eldar góðan mat og smyrillinn fór ekki varhluta af því. Hér er hann að gæða sér á lambakjöti.    Gunnar Örn Arnarson stýrimaður í brúnni með smyrilinn á öxlinni.          Lesa meira
 

05. apr. 2004 : Varðskip stóð togara að meintum ólöglegum veiðum

Mánudagur 5. apríl 2004. Varðskip stóð togara að meintum ólöglegum veiðum í dag og var skipinu vísað til hafnar. Löggæslumenn á varðskipinu mældu möskvastærð poka botnvörpu togarans og reyndust möskvarnir of þéttriðnir. Togarinn var að karfaveiðum með fiskibotnvörpu. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði hefur málið til rannsóknar. Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr. Lesa meira
 

02. apr. 2004 : Sjúkraflug vegna slasaðs skipverja um borð í færeyska togaranum Sólborgu

Föstudagur 2. apríl 2004.   Björgunarstjórnstöðin í Þórshöfn í Færeyjum hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:38 í gær og tilkynnti að skipverji um borð í færeyska togaranum Sólborgu hefði fengið höfuðhögg og óskað væri eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar.  Krókur úr trollhlera hafði slitnað og lent á höfði mannsins.  Sólborg var þá stödd 409 sjómílur vestur af Reykjavík.   Þar sem togarinn var staddur svo fjarri landinu og ekki var aðkallandi að mati læknis að sækja manninn strax var ákveðið að bíða þar til skipið væri komið nær Íslandi og birta færi af degi.      TF-LIF fór í loftið kl. 5:33 í morgun og kom að togaranum 186 sjómílur vestur af Reykjavík um sjöleytið.  Vel gekk að hífa skipverjann um borð og lenti þyrlan við skýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli um kl. 9 .  Þar beið sjúkrabíll sem flutti skipverjann á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut.    Sjá meðfylgjandi mynd sem Hlynur Þorsteinsson læknir í áhöfn TF-LIF tók af togaranum í morgun.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.     Lesa meira
 

02. apr. 2004 : Ríkiskaup gera rammasamninga um kaup á kjöti og fiski fyrir Landhelgisgæsluna og Hafrannsóknastofnun

Föstudagur 2. apríl 2004. Í kjölfar útboðs Ríkiskaupa fyrir Landhelgisgæsluna og Hafrannsóknastofnun voru rammasamningar um kaup á fersku kjöti og fiski undirritaðir 30. mars og tóku þeir gildi í gær.  Árangur útboðsins var góður að mati Landhelgisgæslunnar og má það væntanlega þakka miklu útboðsmagni og góðu ástandi á matvörumarkaði um þessar mundir.  Gerðir voru samningar um kaup á lambakjöti við Kjötvinnsluna Esju ehf, kaup á nautakjöti við KÁ-Ess hf. Kjötvinnslu og kaup á svínakjöti, kjúklingum og fiski við Eimskip ehf. Frílager. Bæði Landhelgisgæslan og Hafrannsóknarstofnun gera út skip og þurfa að kaupa talsvert magn af kosti og því er mikilvægt að ná hagstæðum innkaupum. Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.       Lesa meira
 

02. apr. 2004 : Nýjar myndir á heimasíðu

Vakin er athygli á því að myndir frá björgun fjölveiðiskipsins Baldvins Þorsteinssonar og frá störfum sprengjusérfræðinga í Írak hafa verið settar í myndasafnið á heimasíðunni.  Sjá tengla á myndirnar neðst á forsíðunni. Lesa meira
 

01. apr. 2004 : Björgun Hafdísar GK-092

Fimmtudagur 1. apríl 2004.   Tilkynningarskylda íslenskra skipa hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 9:34 í morgun og tilkynnti að lítil trilla væri strönduð austur af Straumnesi rétt hjá Straumsvík. Það var grásleppubáturinn Hafdís GK-092 sem hafði fengið net í skrúfuna.  Veður var tiltölulega gott en nokkuð brim við ströndina.   Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 10:01.  Er stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði samband við Tilkynningarskylduna til að láta vita af flugtaki fengust þær upplýsingar að skipverjum hefði tekist að koma vélinni í gang og báturinn væri kominn á flot að nýju. Hann kæmist samt sem áður ekki frá strönd fyrir eigin vélarafli.  Um borð í bátnum væru tveir menn.   Er þyrlan var komin á svæðið kl. 10:06 var björgunarsveitarbáturinn Sigurjón Einarsson frá Hafnarfirði kominn til hjálpar.  Hann tók Hafdísi í tog og hélt með bátinn til Straumsvíkur.   Þegar ljóst var að ekki væri lengur hætta á ferðum var þyrlunni snúið aftur til Reykjavíkurflugvallar þar sem hún lenti kl. 10:20.   Sjá meðfylgjandi myndir sem Reynir G. Brynjarsson flugvirki/spilmaður í áhöfn TF-LIF tók í morgun af björgunarsveitarbátnum Sigurjóni Einarssyni með grásleppubátinn Hafdísi í togi.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica