Þyrlulæknar halda áfram störfum
Föstudagur 30. apríl 2004.
Landspítali Háskólasjúkrahús hefur gert samning við þyrlulækna um áframhaldandi störf í þyrlum Landhelgisgæslunnar. Samningi við þá hafði verið sagt upp og var útlit fyrir að þeir hættu störfum um mánaðarmótin. Landhelgisgæslan fagnar því að mál þetta er komið í höfn.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
