Fréttayfirlit: nóvember 2004
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti sjúkling frá Rifi til Reykjavíkur
Þriðjudagur 30. nóvember 2004.
Neyðarlínan hafði samband við Landhelgisgæsluna kl. 14:43 og gaf samband við lækni á Ólafsvík vegna manns sem hafði fengið heilablóðfall. TF-LIF var þá í æfingaflugi yfir Faxaflóa og hélt þegar af stað til Rifs. Þyrlan var komin til Rifs upp úr kl. 15 og lenti með sjúklinginn við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 15:40.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.
Embætti forstjóra Landhelgisgæslunnar auglýst laust til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið hefur auglýst embætti forstjóra Landhelgisgæslunnar laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. desember næstkomandi. Starfið var auglýst í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Varðskipið Týr aðstoðaði nótaskipið Jónu Eðvalds
Sunnudagur 28. nóvember 2004.
Varðskipið Týr dró nóta- og togveiðiskipið Jónu Eðvalds SF-200 til hafnar í Neskaupstað sl. föstudag eftir að skipið hafði fengið veiðarfærin í skrúfuna.
Beiðni um aðstoð barst um ellefuleytið um morguninn. Næsta varðskip var þá í þriggja klukkustunda fjarlægð frá Jónu. Varðskipið Týr kom á svæðið laust eftir kl. tvö og var búið að tengja dráttartaug á milli skipanna um kl. 14:40. Síðan hélt varðskipið áleiðis til Neskaupsstaðar með Jónu í togi.
Að sögn Sigurðar Steinars Ketilssonar skipherra á Tý var allmikill sjór og stinningskaldi á leiðinni en allt gekk vel. Varðskipið skilaði Jónu Eðvalds að bryggju í Neskaupstað kl. 20:17 og þar sáu kafarar úr landi um að hreinsa veiðarfærin úr skrúfunni.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Banaslys á hálendinu
Laugardagur 27. nóvember 2004.Lögreglan á Hvolsvelli hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 17:06 og lét vita að bíll hefði farið út af veginum við Köldukvíslarjökul og lent út í á. Einn maður var í bílnum og var talið að hann væri alvarlega slasaður.Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar var þegar kölluð út og fór TF-LIF í loftið kl. 17:45. Með í för voru starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem höfðu með sér nauðsynlegan búnað til að ná hinum slasaða út úr bílflakinu.
Þyrlan lenti á slysstað kl. 18:45 og var þá maðurinn látinn.
Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.
Kona í barnsnauð flutt með þyrlu til Reykjavíkur
Föstudagur 26. nóvember 2004.Læknir á Blönduósi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um hálfellefuleytið í morgun vegna konu í barnsnauð sem talið var nauðsynlegt að flytja með hraði á sjúkrahús í Reykjavík. Óskað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja konuna. Hún var send af stað með sjúkrabíl sem koma átti til móts við þyrluna.Áhöfn TF-LIF var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 10:59. Þyrlan og sjúkrabíllinn mættust á Holtavörðuheiði um kl. 11:30. Umferð á veginum var stöðvuð svo þyrlan gæti lent og tekið konuna um borð. Þyrlan fór aftur í loftið kl. 11:41 og lenti við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 12:08. Þar beið sjúkrabíll sem flutti konuna á fæðingardeild Landspítala Háskólasjúkrahúss við Hringbraut.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.
Nýr þyrlulæknir í þjálfun hjá Landhelgisgæslunni
Þriðjudagur 23. nóvember 2004.
Í þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar eru auk flugstjóra og flugmanns, stýrimaður (sigmaður), flugvirki (spilmaður) og læknir. Áður en menn geta hafið störf um borð í þyrlum Landhelgisgæslunnar þurfa þeir að fara í gegnum ákveðna grunnþjálfun. Gísli E. Haraldsson læknir á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss er nú í þjálfun hjá flugdeild Landhelgisgæslunnar til þess að geta starfað sem þyrlulæknir. Hann hefur m.a. fengið grunnfræðslu um land- og sjóbjörgun, flugvallaröryggi og fengið leiðbeiningu um notkun nætursjónauka. Í dag prófaði hann nokkrum sinnum að síga úr TF-SIF niður í varðskip en í gær var hann æfður í að síga úr þyrlu niður á sléttlendi og síðan í fjall.
Þar sem þyrlurnar tvær eru nokkuð frábrugðnar þarf hann að taka sömu æfingar á TF-LIF og verða þær haldnar á næstunni samhliða öðrum æfingum þyrluáhafna.
Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður á varðskipinu Ægi tók meðfylgjandi myndir um borð í varðskipinu í dag er Gísli og yfirstýrimaðurinn Páll Geirdal voru að búa sig undir að láta hífa sig úr varðskipinu upp í þyrluna.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Mynd JPÁ: Páll Geirdal yfirstýrimaður og Gísli E. Haraldsson læknir. Rafn Sigurðsson háseti horfir til himins þar sem þyrlan TF-SIF er á sveimi.
Mynd JPÁ: Gísli til í slaginn. Guðmundur Emil stýrimaður fylgist með.
Forstjóri Landhelgisgæslunnar lætur af störfum um áramótin
Dómsmálaráðuneytið gaf í dag út svohljóðandi fréttatilkynningu:
Hafsteinn Hafsteinsson lætur af störfum sem forstjóri Landhelgisgæslu Íslands 1. janúar næstkomandi. Fallist hefur verið á ósk hans um tilflutning í starfi og mun hann hefja störf sem skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu.
Hafsteinn mun á þeim vettvangi meðal annars starfa að málefnum er tengjast Hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Hafsteinn er hæstaréttarlögmaður og hefur verið forstjóri Landhelgisgæslu Íslands í rúm ellefu ár. Hann hefur sérhæft sig í sjótryggingum og hafrétti og er löggiltur niðurjöfnunarmaður sjótjóna.
Mynd DS: Hafsteinn á bryggjunni er varðskipið Óðinn var fært yfir á nýja hafnaraðstöðu Landhelgisgæslunnar á Faxagarði 27. október sl.
Landhelgisgæslan og Efnamóttakan gera samning um eyðingu sprengiefna
Fimmtudagur 18. nóvember 2004.
Landhelgisgæslan og Efnamóttakan gerðu nýlega samning um tæknilega aðstoð og þjónustu sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar við eyðingu sprengiefna.Verkefni sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar eru samkvæmt samningnum að -eyða sprengiefnaúrgangi samkvæmt viðurkenndum aðferðum-veita sérfræðiráðgjöf og þjálfun starfsfólks þegar nauðsynlegt er varðandi örugga geymslu og meðferð sprengiefnaúrgangs-veita 24 tíma neyðarþjónustu vegna atvika sem tengjast sprengiefnum og fyrirspurnum varðandi sprengiefnaúrgang-útvega sprengiefnakassa og sprengiefnagáma sem nauðsynlegir eru til geymslu sprengiefnaúrgangs sem bíður eyðingar.
Við starfsemi þessa fer sprengjudeild Landhelgisgæslunnar eftir alþjóðlegum stöðlum sem sprengjusérfræðingarnir eru sérmenntaðir í.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.
Rússneskar þyrlur kynntar fyrir Landhelgisgæslunni
Miðvikudagur 17. nóvember 2004.
Rússnesk sendinefnd kom til Landhelgisgæslunnar í gær og kynnti þyrlur af gerðinni Kazan Mil. Sendiherra Rússlands Alexander A. Rannikh var viðstaddur kynninguna sem haldin var í flugskýli Landhelgisgæslunnar við Reykjavíkurflugvöll. Kynningin var mjög ítarleg og sýndar allar helstu þyrlur sem fyrirtækið Rosoboronexport selur.
Stærsta þyrla sem fyrirtækið selur, MI-26, er gríðarlega stór og er mesta leyfilega flugtaksþyngd hennar 56 tonn en þess má geta að mesta flugtaksþyngd TF-LIF er 8,6 tonn. Þær þyrlur sem kynntar voru og henta best til björgunarverkefna og eftirlits kallast MI-172 og MI-17 en mesta flugtaksþyngd þeirra er 13 tonn.
Starfsmenn flugdeildar Landhelgisgæslunnar, flugstjórar, flugmenn, flugvirkjar, stýrimenn og læknar ásamt forstjóranum Hafsteini Hafsteinssyni, fylgdust vel með kynningunni og þótti hún bæði fróðleg og áhugaverð.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Mynd DS: Björn Brekkan Björnsson flugrekstrarstjóri, Þorkell Guðmundsson gæðastjóri og rússneski fulltrúinn sem sá um kynninguna.
Mynd DS: Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri og rússneski sendiherrann Alexander A. Rannikh.
Mynd DS: Sigurður Heiðar Wiium flugmaður, Páll Geirdal stýrimaður, Þórarinn Ingi Ingason flugmaður og Hafsteinn Heiðarsson flugstjóri ásamt Hafsteini Hafsteinssyni forstjóra.
Útkall vegna línubátsins Stellu - Þyrla afturkölluð er hættuástandi var aflýst
Þriðjudagur 16. nóvember 2004.
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, var kölluð út 20 mínútur yfir tólf á miðnætti eftir að Reykjavíkurradíó lét vita að línubátinn Stellu NK-12 væri að reka upp í Skarðsfjöru. Þyrlan fór í loftið rétt fyrir klukkan eitt og hélt í lágflugi yfir Hellisheiði. Áhöfnin notaði nætursjónauka. Skyggni var gott að Selfossi en dimm él eftir það.
Er þyrlan var komin að Bakkaflugvelli var hætt við að senda hana á svæðið þar sem fiskibáturinn Sæmundur hafði tekið Stellu í tog og hættuástandi var aflýst. Lóðsinn í Vestmannaeyjum tók við er bátarnir komu að Dyrhólaey og eru bátarnir væntanlegir til Vestmannaeyja eftir hádegið. TF-LIF lenti á Reykjavíkurflugvelli um kl. tvö í nótt.
Dagmar Sigurðardóttir
fjölmiðlaftr.
Fyrrum fjandmenn hittust um borð í Tý í tilefni bókar um árásir bresku freigátunnar Falmouth á Tý í þorskastríðinu
Föstudagur 12. nóvember 2004.
Óttar Sveinsson hefur gefið út bókina ,,Útkall - Týr er að sökkva". Á bókarkápu segir: ,,Fáir vita hve litlu munaði að 21 Íslendingur færist með varðskipinu Tý á Hvalbaksmiðum þegar freigátunni Falmouth var tvisvar siglt á skipið að kvöldi 6. maí 1976, undir lok átakanna um útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur. Þetta var langalvarlegasti atburður allra þorskastríðanna þriggja. Svo mikil heift var komin í stríðið að breski flotinn við Ísland vildi fá að skjóta úr fallbyssum og senda tundurskeyti í áttina að varðskipum okkar. Týr ætlaði að klippa á vörpu breska togarans Carlisle, sem var að ólöglegum veiðum, þegar skipherrann á Falmouth tók afdrifaríka ákvörðun. Risastórri freigátunni var siglt á fullri ferð og afli inn í varðskipið sem fór nær alveg á hliðina og sjór kom upp að brúargluggum. Öllum að óvörum rétti varðskipið sig af og Guðmundur Kjærnested sigldi beint að togaranum og klippti - á annarri skrúfunni eftir áreksturinn! Það var slík niðurlæging að skipherra Falmouth ákvað að sigla aftur á Tý. Margir vilja kalla þá ásiglingu morðárás. Lítið myndefni er til af atburðinum - því gerðu fæstir Íslendingar sér ljóst hversu alvarlegur hann var. Í bókinni lýsa áhafnir allra þriggja skipanna því í fyrsta skipti hvað gerðist nákvæmlega þegar við lá að Bretar bönuðu 21 Íslendingi."
Í tilefni af útgáfu bókarinnar hittust Guðmundur Kjærnested fyrrum skipherra og Mark Masterman fyrrum aðgerðastjóri á Falmouth um borð í varðskipinu Tý en þar gafst fjölmiðlum tækifæri til að ræða við kappana og höfund bókarinnar.Á meðfylgjandi mynd eru Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri, Guðmundur Kjærnested fyrrverandi skipherra á Tý og Mark Masterman sem var aðgerðastjóri um borð í Falmouth þegar atburðirnir áttu sér stað.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.
Varðskipið Týr kom með norska togarann Ingar Iversen í togi til Hafnarfjarðar í morgun
Laugardagur 6. nóvember 2004.
Útgerð norska togarans Ingar Iversen hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um hádegisbilið laugardaginn 30. október og óskaði eftir aðstoð. Togarinn var þá staddur 800 sjómílur (1480 km.) suðvestur af Reykjanesi og var með bilaða vél. Slæmt veður var á svæðinu að sögn skipverja.
Að sögn Kristjáns Þ. Jónssonar yfirmanns gæsluframkvæmda var varðskipið tæpa þrjá sólarhringa á leið til togarans og var búið að koma dráttartaug í hann um kl. 7:30 að morgni þriðjudagsins 2. nóvember. Skipið hafði þá rekið rúmlega 40 sjómílur í norð-norðausturátt á meðan beðið var eftir varðskipinu og var því 760 sjómílur suðvestur frá Reykjanesi þegar varðskipið kom á svæðið. Veður var vestan 7 vindstig eða 15 metrar á sekúndu og mikill sjór. Veður á leiðinni til Íslands var breytilegt, vindur mestur 25 metrar á sekúndu en vindátt var hagstæð.
Týr kom með togarann að bryggju í Hafnarfirði um kl. 8:30 í morgun. Ljóst er að alvarleg bilun hefur komið upp í aðalvél skipsins og viðgerð mun sennilega taka nokkra daga.Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.
Þyrla flutti slasaða stúlku frá Laugabakka
Laugardagur 6. nóvember 2004.
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF var kölluð út kl. 1:49 í nótt eftir að læknir á Hvammstanga hafði óskað eftir aðstoð vegna stúlku á Laugabakka sem hafði dottið og fengið slæma höfuðáverka.
Þyrlan fór í loftið kl. 2:18 og notaði áhöfnin nætursjónauka. Haldið var til móts við sjúkrabíl sem var lagður af stað með stúlkuna. Lent var við þjóðveginn á afleggjaranum að Bröttubrekku um kl. 2:40 og kom sjúkrabíllinn skömmu síðar.TF-LIF flaug aftur af stað til Reykjavíkur með stúlkuna kl. 2:55 og lenti við slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi kl. 3:20.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.
Sjávarfallatöflur og sjávarfallaalmanak fyrir árið 2005 komin út
Föstudagur 5. nóvember 2004.
Sjómælingasvið Landhelgisgæslunnar, Sjómælingar Íslands, hefur gefið út sjávarfallaalmanak og sjávarfallatöflur fyrir árið 2005.
Almanakið sýnir sjávarfallabylgjuna á myndrænan hátt. Breyting frá degi til dags og hlutfallsleg stærð hennar við stórstraum og smástraum kemur greinilega fram á línuriti. Hverjum sólarhring er deilt niður í tveggja klukkustunda bil og er sjávarhæðin sýnd í metrum miðað við „núllið“ (meðalstórstraumsfjöru). Með hjálp línuritsins má því áætla sjávarstöðuna á hverjum tíma. Sé þörf á meiri nákvæmni koma töflurnar í góðar þarfir en í þeim er tími og hæð flóðs og fjöru gefinn upp nákvæmlega.
Stórstreymt er einum til tveim dögum eftir nýtt eða fullt tungl en smástreymt einum til tveim dögum eftir fyrsta og síðasta kvartil. Í almanakinu er sýnt hvenær kvartilaskipti tungls verða.
Sjávarfallatöflur, sjávarfallaalmanak og sjókort fást hjá Áttavitaþjónustunni í Reykjavík.
Í kortaskrá Sjómælinga Íslands eru upplýsingar um sjókort og aðrar útgáfur auk upplýsinga um umboðsmenn úti á landi. Kortaskráin er á heimasíðu Landhelgisgæslunnar á slóðinni: http://lhg.is/displayer.asp?cat_id=44
Á meðfylgjandi myndum má sjá tíma og hæð flóðs og fjöru í janúar - mars í Reykjavík 2005 og sjávarföll í Reykjavík í janúar 2005.
Árni Vésteinsson
deildarstjóri kortadeildar
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eru í Kolding með danska landhernum
Föstudagur 5. nóvember 2004.
Tveir sprengjusérfræðingar frá Landhelgisgæslunni, Jónas Þorvaldsson og Ágúst Magnússon, eru nú ásamt sprengjusérfræðingum danska landhersins við flugeldaverksmiðjuna í Kolding í Danmörku. Jónas og Ágúst fóru á námskeið og í þjálfun í sprengjueyðingu til landhersins í Danmörku í byrjun vikunnar. Námskeiðahaldi hefur nú verið frestað þar sem allir sprengjusérfræðingar landhersins fóru til starfa í Kolding.
Að sögn Jónasar Þorvaldssonar hefur eldsvoðinn og sprengingar í kjölfar hans valdið gífurlegri eyðileggingu í Kolding. Það er búið að rýma öll húsin í kringum verksmiðjuna og stóru svæði í kringum hana hefur verið lokað. Jónas og Ágúst eru nú ásamt sprengjusérfræðingum danska landhersins, lögreglu, slökkviliði og fulltrúum almannavarna á svæðinu. Vélmenni eru notuð til að fara að gámum sem innihalda sprengiefni sem eldurinn hefur ekki náð að læsa sig í. Hermenn nota skriðdreka til að fara um svæðið og og afla upplýsinga um ástandið m.a. með því að taka myndir.
Í morgun fóru sprengjusérfræðingarnir frá danska landhernum og sóttu lík slökkviliðsmannsins sem fórst í sprengingunni sl. miðvikudag. Ástandið er enn talið of hættulegt til að hefja hreinsunarvinnu í rústum verksmiðjunnar, sérstaklega vegna sprengiefnisins í gámunum sem enn getur sprungið. Núna eru sprengjusérfræðingarnir að færa sig nær rústunum, en þó í hæfilegri fjarlægð, og eyða flugeldum sem liggja eins og hráviði um nágrenni verksmiðjunnar.
Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr.
Jónas og Ágúst.
Tundurdufl kom upp með veiðarfærum togarans Svans EA-14 frá Dalvík
Föstudagur 5. nóvember 2004.
Um kl. 10:30 í morgun hafði skipstjórinn á togaranum Svani EA-14 frá Dalvík samband við sprengjudeild Landhelgisgæslunnar og lét vita að torkennilegur hlutur hefði komið upp með veiðarfærum skipsins er það var að veiðum út af Austurlandi. Skipstjórinn taldi að um tundurdufl væri að ræða.
Eftir samtal við skipstjórann kom í ljós að um var að ræða 227 kg. sprengjuhleðslu með forsprengju og hvellhettum úr bresku tundurdufli. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar töldu að tundurduflið skapaði hættu fyrir skipið og áhöfn þess og því var skipstjóranum ráðlagt að halda þegar til hafnar. Tveir sprengjusérfræðingar fóru með flugvél til Egilsstaða og fóru um borð í skipið í Neskaupstað þar sem þeir gerðu sprengjuhleðsluna óvirka. Þar næst fluttu þeir hana úr skipinu og eru nú, kl. 16, að eyða henni. Togarinn er á leið til veiða að nýju.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr./Adrian King sprengjusérfræðingur