Fimmtudagur 27. janúar 2005.
Eiríkur Kristófersson skipherra sigldi varðskipinu Óðni inn í Reykjavíkurhöfn 27. janúar 1960. Fjöldi manns fagnaði komu þessa nýja og fullkomna skips Landhelgisgæslunnar, fánar blöktu við hún og helstu ráðamenn þjóðarinnar voru viðstaddir komu Óðins. Síðan eru liðin 45 ár og hefur Óðni verið vel við haldið síðan.
Óðinn var smíðaður í Álaborg í Danmörku og þegar skipið kom til Íslands var það talið eitt fullkomnasta björgunarskip á norðurslóðum með 2 aðalvélar og 18 sjómílna ganghraða.
Halldór Nellett skipherra á varðskipinu Ægi hefur farið í gegnum skýrslur um borð í Óðni og tekið saman björgunarsögu hans frá janúar 1960 – janúar 2005. Eftirfarandi staðreyndir koma fram í samantekt hans:
Óðinn hefur 197 sinnum dregið skip til lands eða í landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð og 14 sinnum hefur Óðinn dregið flutninga- og fiskiskip úr strandi. Þá hefur áhöfn Óðins 3 sinnum bjargað áhöfnum strandaðra skipa og 2 sinnum bjargað áhöfnum sökkvandi skipa.Alloft hefur læknir verið í áhöfn Óðins en þá hefur skipið verið sent á fjölsótt mið m.a. í þeim tilgangi að veita áhöfnum fiskiskipa læknishjálp. Árið 1968 sigldi Óðinn með flotanum á síldarmiðin norður við Svalbarða og árin 1994, 1995 og 1996 sigldi Óðinn til aðstoðar íslenskum togurum í Barentshafi, svokallaðri Smugu. Skipslæknirinn hafði í nógu að snúast í þessum ferðum.
Ýmsar leiðir voru farnar til að koma sjúkum og slösuðum til hjálpar. Sem dæmi má nefna þegar Óðinn var sendur til Grænlands árið 1962 til að sækja sjúkling. Um borð í skipinu var þyrla sem notuð var til að fljúga frá ísröndinni til lands að sækja sjúklinginn. Síðan sigldi Óðinn með sjúklinginn og þyrluna til Reykjavíkur.
Varðandi almenn löggæslustörf má geta þess að Óðinn tók þátt í öllum þorskastríðunum. Fyrsta stríðið hófst vegna útfærslu lögsögunnar úr 4 sjómílum í 12 sjómílur árið 1958. Því lauk ekki fyrr en árið 1961 en þá hafði Óðinn verið í rekstri í rúmt ár. Næsta stríð upphófst vegna úrfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur árið 1972 og lauk því í lok ársins 1973. Síðasta þorskastríðið hófst 1975 er fiskveiðilögsagan var færð úr 50 sjómílum í 200 sjómílur og lauk í júní 1976.Hafísveturinn 1967-1968 gerðist “landsins forni fjandi” nærgöngull og teppti siglingar til Norður- og Austurlands. Það er til marks um ástandið á þeim tíma að á Alþingi lögðu 18 þingmenn úr öllum stjórnmálaflokkum fram þingsályktunartilllögu um að kjósa skyldi 5 manna nefnd sem gera átti ráðstafanir til að koma í veg fyrir að á verslunarstöðum í þeim landshlutum þar sem hafíshætta yrði mest, yrði skortur á brýnustu nauðsynjavörum og var þá einkum átt við kjarnfóður og olíu. Óðinn tók mikinn þátt í að sinna þessu svo sem að brjóta flutninga- og fiskiskipum leið gegnum ísinn, aðstoðaði alls 17 skip, flutti um 55 tonn af vörum og dældi 151 tonni af olíu í land á Austfjarðahöfnum.
Í febrúar 1968 geysaði fárviðri um mest allt land. Verst var veðrið á Vestfjörðum. Þar var ofsaveður með mikilli ísingu en áhöfn Óðins var þá við gæslustörf á Ísafjarðardjúpi. Í þessu fárviðri fórust 3 skip í Djúpinu með miklum mannssköðum.
Fiskiskipið Heiðrún frá Bolungarvík fórst með allri áhöfn. Breski togarinn Ross Cleveland sökk þar einnig. Bæði skipin fórust vegna yfirísingar en Óðni tókst að bjarga áhöfn breska togarans Notts County sem strandaði við Snæfjallaströnd.
Einn maður var látinn um borð í Notts County þegar varðskipsmönnum tókst að komast um borð. Á Ross Cleveland fórust allir utan 1 sem komst í land á gúmbát við illan leik. Eins og áður sagði var mikil ísing á þessum slóðum og voru mörg skip í hættu sem höfðu leitað vars í Djúpinu, aðallega breskir togarar. Áhöfninni á Óðni tókst með þrautseigju og nær stanslausum ísbarningi að halda skipinu á réttum kili. Ein Útkallsbóka Óttars Sveinssonar segir nánar frá þessum atburðum.Óðinn hefur lítið verið gerður út undanfarið. Skipið er þó enn í nokkuð góðu ásigkomulagi miðað við “aldur og fyrri störf” og með gilt haffærisskírteini. Hlutverk skipsins hefur verið að fylla skarð varðskipanna Týs og Ægis þegar þau fara í slipp eða endurbætur eru gerðar á þeim. Ráðgert er að Óðinn verði gerður út a.m.k. næstu 2 sumur, í 4-5 mánuði, en þá er fyrirhugað að gera miklar endurbætur á Tý og Ægi. Ægir verður 37 ára á árinu og Týr 30 ára. Brýr skipanna og allar íbúðir verða endurnýjaðar, ný dráttarspil sett um borð og miklar endurbætur gerðar í vélarrúmum. Þess má geta að öll varðskipin, þ.m.t. Óðinn, eru með upprunalegar aðalvélar.Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr. / Halldór Nellett skipherra
Óðinn við komuna til landsins 27. janúar 1960.
Lesa meira