Fréttir

Fyrirsagnalisti

31. jan. 2005 : Varðskipin Týr og Ægir komu með Dettifoss til hafnar á Eskifirði laust eftir miðnætti

Mánudagur 31. janúar 2005.Varðskipin Týr og Ægir komu með flutningaskipið Dettifoss til Eskifjarðar laust eftir miðnætti í nótt.  Á meðfylgjandi mynd sem tekin var í gær sést varðskipið Týr með Dettifoss í togi.  Dettifoss er stærsta flutningaskip landsins eða 14.600 brúttótonn en varðskipið Týr er um 1200 brúttótonn enda sést stærðarmunurinn greinilega á myndinni.Í dag rannsökuðu kafarar frá varðskipinu Ægi aftari hliðarskrúfu og aðalskrúfu Dettifoss.  Dráttartógið sem slitnaði frá varðskipinu Tý aðfararnótt laugardags hafði flækst í skrúfunum og fundust 10 vafningar af Dynex dráttartógi þéttvafnir um skrúfuhaus og bugt hliðarskrúfa. Köfurum tókst að hreinsa tógið úr aftari hliðarskrúfu og er hún því orðin virk.  Aðalskrúfan hafði verið virk allan tímann þrátt fyrir að tógið hafi einnig flækst í henni.  Kafarar Ægis hreinsuðu það. Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr. Mynd/Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður. Kafarar frá varðskipinu Ægi hreinsuðu dráttartóg úr hliðarskrúfu og aðalskrúfu Dettifoss. Fremst á myndinni er Einar Valsson yfirstýrimaður og kafari. Mynd/Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður. Kafararnir á Ægi, Óskar Á. Skúlason, Jóhann Örn Sigurjónsson og Einar Valsson lýsa aðstæðum neðansjávar fyrir skipherranum Halldóri Nellett. Mynd/Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður.  Myndin er tekin frá varðskipinu Ægi. Á myndinni sést glitta í dráttartaugina milli Týs og Ægis. Lesa meira
 

31. jan. 2005 : Sjúkraflug TF-LIF og TF-SYN í togarann Guðmund í Nesi - skipverji illa slasaður á hendi

Mánudagur 31. janúar 2005.   Skipstjórinn á togaranum Guðmundi í Nesi kl. hringdi í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 16:42 og óskaði eftir aðstoð vegna skipverja sem er illa slasaður á hendi.  Honum var strax gefið samband við lækni í áhöfn TF-LIF.  Þegar læknirinn hafði fengið upplýsingar um ástand slasaða skipverjans var ákveðið að sækja hann með þyrlu. Skipið var þá statt 165 sjómílur vestur af Reykjavík og var skipstjórinn beðinn að sigla á fullri ferð til móts við þyrluna.   Áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út ásamt áhöfn TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar.  Nauðsynlegt var að þyrlan fengi fylgd flugvélarinnar öryggisins vegna þar sem þyrlan þurfti að fara út fyrir drægi TF-SIF, minni þyrlu Landhelgisgæslunnar, og skyggni var lélegt.   TF-SYN fór í loftið kl. 17:35 og TF-LIF kl. 1748.  Laust eftir kl. 19 kom þyrlan að skipinu og var lokið við að hífa sjúklinginn um borð í þyrluna hálftíma síðar.  TF-SYN og TF-LIF eru nú á leið til Reykjavíkur og er áætlað að þyrlan og flugvélin verði þar á níunda tímanum í kvöld.   Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.     Lesa meira
 

31. jan. 2005 : Kristinn Helgason kortagerðarmaðu hættir hjá Landhelgisgæslunni / Sjómælingum Íslands eftir 32 ára farsælt starf

Mánudagur 31. janúar 2005. Kristinn Helgason kortagerðarmaður hætti störfum í dag eftir 32 ára farsælt starf hjá Sjómælingum Íslands / Landhelgisgæslunni.  Af því tilefni var haldin veisla honum til heiðurs og þakkaði Georg Kr. Lárusson forstjóri honum fyrir vel unnin störf, vandvirkni og dugnað.Kristinn hóf störf hjá Sjómælingum Íslands árið 1972 en þar áður hafði hann starfað hjá Landmælingum Íslands frá 1957.  Hann nam kortagerð vetrarlangt hjá Geodætisk Institut í Kaupmannahöfn en þar áður hjá Ágústi Böðvarssyni forstjóra Landmælinga Íslands.Gunnar Bergsteinsson fyrrverandi forstjóri Landhelgisgæslunnar og þar áður Sjómælinga Íslands og eiginkona hans, Brynja Þórarinsdóttir, heilsuðu upp á Kristinn í tilefni dagsins. Kristinn fékk ýmsar góðar gjafir frá samstarfsfólkinu hjá Landhelgisgæslunni, þ.á.m. teiknaða mynd af honum sjálfum. Kristinn þakkaði stofnuninni og starfsfélögum sínum fyrir samstarfið og góðar gjafir og óskaði þeim gæfu og gengis í framtíðinni.Dagmar Sigurðardóttirfjölmiðlaftr. Mynd DS: Gunnar Bergsteinsson fyrrverandi forstjóri Landhelgisgæslunnar og þar áður Sjómælinga Íslands, Kristinn Helgason kortagerðarmaður og Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar.  Mynd DS: Georg Kr. Lárusson forstjóri þakkaði Kristni Helgasyni fyrir vel unnin störf í þágu Landhelgisgæslunnar/Sjómælinga Íslands.Mynd: Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður: Kristinn ásamt vinum sínum og samstarfsfélögum Snjólaugu Guðjohnsen og Sjöfn Axelsdóttur á vorfagnaði Landhelgisgæslunnar í Austurbugt vorið 2004. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica