Föstudagur 18. mars 2005. Flaggskip Landhelgisgæslunnar, varðskipið Týr, er 30 ára um þessar mundir og halda starfsmenn Landhelgisgæslunnar upp á afmæli skipsins í dag. Sigurður Steinar Ketilsson skipherra segir skipið vera happaskip og það hafi reynst vel allan þennan tíma. Hann segir það hafa fylgt skipinu frá því það var tekið í notkun að þar er valinn maður í hverju rúmi og mannskapurinn alveg til fyrirmyndar. Margir í áhöfn skipsins hafa verið lengi við störf hjá Landhelgisgæslunni. Pétur Sigurðsson forstjóri skrifaði undir smíðasamning skipsins í desember 1973 og var því hleypt af stokkunum í október 1974. Dóra Guðbjartsdóttir eiginkona Ólafs Jóhannessonar dómsmálaráðherra gaf skipinu nafnið Týr við það tækifæri. Skipið fór í reynslusiglingu 8. mars 1975 undir dönskum fána en var formlega afhent Landhelgisgæslunni 14. mars 1975. Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgisgæslunnar tók á móti skipinu og var þá íslenski fáninn dreginn að húni. Skipið kom síðan til Reykjavíkur í fyrsta sinn 24. mars 1974 og lagðist þar að bryggju við Ingólfsgarð kl. 16:37 eins og fram kemur í bókum skipsins. Týr fór í sína fyrstu ferð til björgunar- og landhelgisgæslustarfa frá Reykjavík 29. mars 1975 undir stjórn Guðmundar Kærnested skipherra. Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr. Mynd: Jón Kr. Friðgeirsson bryti.
Lesa meiradesember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, mars