Fréttir

Fyrirsagnalisti

28. júl. 2005 : Myndir af flutningi flugvélarinnar Cessna 180 TF-IOO sem hlekktist á í Fljótavík 15. júlí

Fimmtudagur 28. júlí 2005. Meðfylgjandi myndir voru teknar eftir að Cessna 180 flugvélinni TF-IOO hlekktist á í Fljótavík 15. júlí s.l.  Engin meiðsl urðu á fólki en TF-LIF flutti 2 menn frá Flugslysanefnd, 1 mann frá Flugmálastjórn og einn rannsóknarlögreglumann frá Ísafirði á staðinn.  Taka þurfti vélina í sundur og flytja hana út í varðskipið Óðinn sem lá skammt frá í Fljótavíkinni. Varðskipið flutti hana síðan til hafnar á Ísafirði.Myndirnar tóku áhafnir þyrlunnar TF-LIF og varðskipsins Óðins. Reynir G. Brynjarsson flugvirki og Sigurður Ásgeirsson flugstjóri taka eldsneyti af flugvélinni fyrir flutning út í varðskipið Óðinn. Annar vængur vélarinnar tekinn af. Góð samvinna áhafnar þyrlunnar TF-LIF og áhafnar varðskipsins Óðins. TF-LIF lögð af stað með skrokk flugvélarinnar. TF-LIF og léttbátur varðskipsins Óðins á leið með flugvélina að varðskipinu Óðni. Einar Valsson yfirstýrimaður og Linda Ólafsdóttir háseti bíða á pallinum á Óðni.  Búið að flytja skrokk vélarinnar út í varðskipið Óðinn og næsta skref að sækja vængina.       Lesa meira
 

28. júl. 2005 : Sprengikúla fannst í vegkanti við bæinn Vatnsenda í Eyjarfirði

Fimmtudagur 28. júlí 2005. Bóndi á Vatnsenda í Eyjarfirði fann nýverið sprengikúlu frá stríðsárunum í vegkantinum einn kílómetra frá bæjarhúsunum.  Hún taldi að kúlan gæti reynst hættuleg svo að hún kom henni í hendur lögreglunnar á Akureyri.  Lögreglan á Akureyri hafði þá strax samband við sprengjudeild Landhelgisgæslunnar sem sendi tvo sprengjusérfræðinga til að eyða kúlunni.  Við athugun sprengjusérfræðinganna á staðnum þar sem kúlan fannst og miðað við ástand kúlunnar er líklegast að hún hafi borist þangað með malarefni sem notað var í viðgerð á veginum.  Við frekari athugun kom í ljós að malarefnið var tekið úr árbotni við Melgerðiseyri en þar var stór herflugvöllur í seinna stríði Um var að ræða bandaríska sprengjukúlu af gerðinni M54 með hlaupvídd 37 mm sem var notuð í loftvarnabyssur.  Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar vara fólk við að snerta hluti sem gætu hugsanlega verið sprengjur. Hafa skal samband við lögreglu eða Landhelgisgæslu ef torkennilegir hlutir, sem gætu reynst vera sprengjur, finnast. Adrian King sprengjusérfræðingur Mynd: Adrian King.  Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica