Fréttayfirlit: 2006
Flogið yfir strandstað
Fimmtudagur 28. desember 2006.
TF-SYN flaug í dag yfir strandstað Wilson Muuga þar sem verið var að dæla olíu úr skipinu.
Smíðasamningur um nýtt varðskip undirritaður
Miðvikudagur 20. desember 2006
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslu Íslands undir smíðasamning við Carlos Fanta de la Vega, forstjóra skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Chile um smíði á nýju varðskipi.
Björgun á sjó við Sandgerði
Sjálfvirka auðkenningarkerfi skipa (AIS) sannar gildi sitt.
Landhelgisgæslan hóf eftirgrennslan eftir fiskibát sem dottið hafði úr sjálfvirku tilkynningarskyldunni. Báturinn fannst eftir að haft hafði verið samband við danska varðskipið Triton sem LHG sá að var í nágrenni við þann stað sem síðast var vitaðu um fiskibátinn.
Erlent flutningaskip í vanda
Fimmtudagur 16. nóvember 2006
Í gærkvöldi fóru menn úr áhöfn varðskips um borð í flutningaskipið Wilke þar sem það lónaði undan Hornafirði. Landhelgisgæslunni þótti ástæða til að kanna ástandið um borð þar sem skipstjóri skipsins hafði ekki treyst sér og áhöfn sinni til að sigla skipinu norður með austurlandi til Reyðarfjarðar sem er ákvörðunarstaður skipsins.
Tilboð opnuð í leitar- og eftirlitsflugvél fyrir LHG
Fimmtudagur 16. nóvember 2006
Í dag voru opnuð tilboð í leitar- og eftirlitsflugvél fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Tvö tilboð bárust eitt frá Fields Aviation Company og annað frá Fields Aviation í samstarfi við Flugfélag Íslands.
Fylgst með ferðum olíuskips við Ísland
Föstudagurinn 10. nóvember 2006
Frá því seint í gærkvöldi hefur Landhelgisgæslan í samstarfi við Siglingastofnun fylgst með ferðum 50.000 tonna olískips úr AIS eftirlitskerfinu í Vakstöð siglinga. Skipið kom inn í kerfið þegar það nálgaðist suð-austurland og hélt norður undir 12 sjómílna landhelgina suður af Ingólfshöfða.
Áhöfn Vs. Týs býður öðrum starfsmönnum LHG í vöfflukaffi í nýendurbætt skip
Mánudagurinn 6. nóvember 2006
Í byrjun október kom varðskipið Týr til Reykjavíkur eftir endurbyggingu í Póllandi. Af því tilefni bauð áhöfnin samstarfsmönnum sínum í vöfflukaffi síðastliðinn föstudag.
Fréttatilkynning vegna öryggislendingar flugvélar frá Continental Airlines á Keflavíkurflugvelli miðvikudaginn 25. október 2006
Fimmtudagur 2. nóvember 2006
Vegna umræðna sem verið hafa að undanförnu um viðbrögð við öryggislendingu flugvélar frá Continental Airlines á Keflavíkurflugvelli miðvikudaginn 25. október vilja almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans, fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglu-stjórans, Flugmálastjórn Íslands, Landhelgisgæsla Íslands, Neyðarlínan – 112, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli og Vaktstöð siglinga koma eftirfarandi á framfæri.
Æfingar flugdeildar með skipum/bátum Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Miðvikudagur 1. nóvember 2006
Mikil þjálfun hefur staðið yfir undanfarna mánuði á þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar. Vegna fjölgun þyrlanna hafa nýjir flugmenn, spilmenn og sigmenn verið ráðnir og þá hefur þurft að þjálfa til að takast á við ýmis verkefni og aðstæður sem þyrlur stofnunarinnar geta lent í.
Hollvinasamtök Óðins
Föstudagur 27. október 2006
Í gær voru stofnuð Hollvinasamtök Óðins. Fjölmenni mætti á stofnfundinn sem haldinn var í Víkinni, sjóminjasafni Reykjavíkur.
Myndir af þyrlusveit
Fimmtudagur 26.október 2006
Þrjár þyrlur LHG fóru til móts við flugvél sem tilkynnt hafði um bilaðan hreyfil í gær. Flugvél LHG var undirbúin undir björgunarflug og varðskipið Týr fór til móts við flugstefnu vélarinnar.
Viðbrögð Landhelgisgæslunnar við tilkynningu um flugvél með bilaða hreyfla
Miðvikudagur 25. október 2006
Kl. 14:59 barst Vakstöð siglinga/Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
upplýsingar um að flugvél frá Continental flugfélaginu væri með bilaða hreyfla.
Aðalmeðferð Sancy málsins
Miðvikudagur 11. október 2006
Þriðjudaginn 10. október fór fram aðalmeðferð í opinberu máli sem lögreglustjórinn á Eskifirði höfðaði gegn Elnar Holm skipstjóra færeyska togarans Sancy TG-519 fyrir að hafa 18. júní sl. óhlýðnast fyrirmælum varðskipsins Óðins og tálmað skipverjum varðskipsins uppgöngu í togarann.
Hann var jafnframt, ásamt Vagnar Joensen stýrimanni, ákærður fyrir fiskveiðbrot í íslenskri lögsögu.
Við aðalmeðferð málsins báru 11 starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem að málinu komu vitni. Meðfylgjandi myndir eru af starfsmönnum Landhelgisgæslunnar í Héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum og á Egilsstaðaflugvelli.
Tilkynning frá Landhelgisgæslunni
Miðvikudagur 11. október 2006
Vegna komu bandaríska herskipsins Wasp til Reykjavíkur sem mun leggjast að bryggju við Skarfabakka mun svæðið umhverfis bryggjuna verða lokað fyrir skipa- og bátaumferð frá miðvikudeginum 11. október fram til brottfarar skipsins. Varðbáturinn Baldur mun verða með gæslu á lokunarsvæðinu. Stjórnendur skipa og báta sem leið eiga um Viðeyjarsund er bent á að Landhelgisgæslan verður með hlustvörslu á rás 12 VHF um borð í Baldri.
Landhelgisgæslan fær flugrekstarleyfi
Mánudagur 9.október 2006
Föstudaginn 6. október sl. fékk Landhelgisgæsla Íslands útgefið flugrekstrarleyfi hjá Flugmálastjórn. Leyfið hefur mikla þýðingu fyrir stofnunina og býður upp á ýmsa möguleika varðandi störf stofnunarinnar til framtíðar. Flugrekstrarleyfi er grundvöllur þess að erlend fyrirtæki fáist til að leigja loftför til Landhelgisgæslunnar en eins og kunnugt er stendur til að stofnunin fái 3 þyrlur leigðar.
- Fyrri síða
- Næsta síða