Fimmtudagur 12. janúar 2005.Í dag fór fram hjá Ríkiskaupum opnun á umsóknum um þátttöku í lokuðu útboði um smíði á nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæsluna og dómsmálaráðuneytið. Eftirtaldir sendu inn umsóknir:1. Astilleros Armon S,A. Spain2. China Ship Building Trading Company, China3. Bergen Yards AS, Norway4. Navantia S.A., Spain5. Simek A/S, Norway6. Damen Shipyards Goringchem, The Netherlands7. Devenport Royal Dockyard Limited, United Kingdom8. Gdansk Stocznia Remontowa im, Poland9. Chantiers De' Atlantique (Alstom Naval), France10. Thyssen Krupp Marine Systems (TKMS), Germany11. Fincantieri Cantieri Navali, Italy12. Peene-Werft GmbH, Germany13. Karstensens Skibsværft A/S, Danmark14. Asmar, Chile15. Aker Brattvaag Skibsverft A.S., NorwayStefnt er að því að umsækjendur fái útboðsgögn í febrúar og undirritaður samningur liggi fyrir í byrjun sumars.Á heimasíðu Ríkiskaupa kemur fram að verkið felst í hönnun og smíði á nýju fjölnota varðskipi fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Gert er ráð fyrir að helsta hlutverk skipsins verði m.a. löggæsla á hafi, fiskveiðieftirlit innan efnahagslögsögu Íslands, leit og björgun á hafi og flutningur björgunarsveita við leit og björgun. Þá kemur fram í auglýsingu að hlutverk skipsins verði líka að þjóna sem stjórnstöð á hamfarasvæðum við Ísland sem og við leit og björgun. Skal skipið vera útbúið til að geta fengist við mengunarslys á hafi og geta gefið þyrlum á flugi eldsneyti. Miðað er við að skipið geti dregið allt að 150 þúsund tonna skip. Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.
Lesa meira