Miðvikudagur 8. febrúar 2006.
Landhelgisgæslan mun taka þátt í 112 deginum um helgina og er dagskráin svohljóðandi samkvæmt fréttatilkynningu frá skipuleggjendum:
Mikið verður um dýrðir hjá viðbragðsaðilum um allt land laugardaginn 11. febrúar, á 112 (einn, einn, tveir) daginn sem haldinn var í fyrsta sinn hér á landi fyrir ári. Slökkvilið, lögregla, björgunarsveitir, Rauði krossinn, Landhelgisgæslan og fleiri munu þá fylkja liði og fara í bíla- og tækjalestum um borg og bæi undir merkjum samvinnu og samhæfingar. Að því búnu bjóða þeir almenningi að kynnast starfseminni í opnu húsi sem efnt verður til um allt land.
Neyðarlínan, 112, fagnar einnig tíu ára afmæli sínu um þessar mundir og efnir af því tilefni til ráðstefnu um neyðarnúmerið og þróun neyðarþjónustu föstudaginn 10. febrúar. Neyðarlínan hóf starfsemi 1. janúar 1996 og leysti 112 þá af hólmi fjöldann allan af neyðarnúmerum sem fólk þurfti að nota eftir því hvað hafði gerst og hvar viðkomandi var staddur á landinu. Nú er með einu símtali í 112 unnt að virkja á augabragði lögreglu, slökkvilið, almannavarnir, Landhelgisgæsluna, sjúkraflutningamenn, lækna, hjálparlið sjálfboðaliða og barnaverndarnefndir. Um 300 þúsund símtöl berast Neyðarlínunni á hverju ári.
Dagskrá vegna afmælis 112 og 112 dagsins verður sem hér segir:
10. febrúar – ljósmyndasýning og ráðstefna
Kl. 11.00
Ljósmyndasýningin Útkall 2005 verður opnuð í Kringlunni og stendur til 17. febrúar. Á sýningunni verður að finna úrval ljósmynda af starfi viðbragðsaðila 2005.
Kl. 13.00-17.00
Ráðstefnan 112 í tíu ár – hvað hefur breyst, hvað er framundan? haldin á Hótel Loftleiðum. Að loknu setningarávarpi Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra verður tilkynnt um val á skyndihjálparmanni Rauða krossins 2005.
Fyrirlesarar:
Jónína Sigurðardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóranum.
Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur hjá landlæknisembættinu.
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS.
Sigurgeir Guðmundsson og Kristján Maack, Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Jyrki Landstedt, framkvæmdastjóri 112 í Finnlandi.
11. febrúar – 112 dagurinn
Slökkvilið, lögregla, björgunarsveitir, heilbrigðisstofnanir, Rauða kross deildir, Landhelgisgæslan og fleiri standa sameiginlega að því að kynna starf sitt með ýmsum hætti um allt land, meðal annars með því að fara með lest björgunartækja um borg og bæi og bjóða almenningi í opið hús.
Dagskrá á höfuðborgarsvæðinu
Kl. 12.00: Tilkomumikil lest á þriðja tug björgunartækja ekur frá Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð með blikkandi ljósum um Reykjavík, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð. Þyrla Landhelgisgæslunnar fylgir lestinni eftir úr lofti.
Kl. 13.00-16.00: Opið hús, tækjasýning og kynning á starfsemi viðbragðsaðila í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð. Verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2005 verða afhent kl. 13.30.
Kl. 13.00-16.00: Varðskip, björgunarskip, þyrla og fleiri björgunartæki til sýnis við Reykjavíkurhöfn.
Sambærilegir viðburðir hafa verið skipulagðir um allt land, svo sem á Akranesi, í Borgarnesi, í Snæfellsbæ, á Ísafirði, Blönduósi, í Skagafirði, á Akureyri, Þórshöfn, Vopnafirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Djúpavogi, Höfn í Hornafirði, Selfossi og í Reykjanesbæ.
Verkefnisstjóri 112 dagsins er Garðar H. Guðjónsson.
Úr myndasafni: Þyrla Landhelgisgæslunnar lent við Smáralind og áhorfendur sópast að. Myndin er tekin á 112 deginum í fyrra.
Lesa meira