Fréttir

Fyrirsagnalisti

30. maí 2006 : Hvalshræ sprengt í loft upp til að koma í veg fyrir siglingahættu

Þriðjudagur 30. maí 2006.Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu um að hvalshræ væri á reki norðvestur af Gróttu um kl. 15 í gær.  Kom í ljós að þarna var á ferð 6 metra löng hrefna sem skapaði siglingahættu fyrir smærri báta og einnig var hætta á að hræið ræki á fjörur á höfuðborgarsvæðinu þar sem rotnun með tilheyrandi lykt gæti orðið til ama. Áhöfn björgunarskips Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Ásgríms S. Björnssonar, lét úr höfn ásamt sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar upp úr kl. 18 og hófst þá leitin að hvalshræinu.  Þegar það fannst komu sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar sprengiefni fyrir ofan á hvalnum og sprengdu hann þannig að hann sökk. Sjá meðfylgjandi mynd af hvalshræinu. Myndina tók Ásgrímur Ásgrímsson yfirmaður vaktstöðvar siglinga/stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar sem jafnframt er skipstjóri á framangreindu björgunarskipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Dagmar Sigurðardóttir lögfræðingur/upplýsingaftr.Hvalshræið var á reki 3.5 sjómílur norðvestur af Gróttu á Seltjarnarnesi. Lesa meira
 

30. maí 2006 : Samkoma fyrir Landhelgisgæslumenn og þorskastríðshetjur - 30 ár frá lokum síðasta þorskastríðs

Þriðjudagur 30. maí 2006.Hafréttarstofnun Íslands stendur fyrir málstofu um þorskastríðin þrjú 1. júní næstkomandi.  Sjá dagskrá og frekari upplýsingar á heimasíðu Háskóla Íslands á slóðinni:http://hi.is/Apps/WebObjects/HI.woa/wa/dp?detail=1006855&name=frettasida Starfsmannafélag Landhelgisgæslunnar hefur ákveðið að hóa saman Landhelgisgæslumönnum og gömlum þorskastríðshetjum í beinu framhaldi af málstofunni og birtist eftirfarandi auglýsing í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu:Landhelgisgæslumenn / þorskastríðshetjur   Nú eru liðin 30 ár frá lokum þorskastríðsins síðasta. Af því tilefni ætla gamlar þorskastríðshetjur og núverandi starfsmenn Landhelgisgæslunnar að hittast á Kaffi Reykjavík fimmtudaginn 1. júní milli kl. 15:30 - 17:30 í beinu framhaldi af málstofu Hafréttarstofnunar Íslands um þorskastríðin þrjú. Allir aðrir áhugasamir eru velkomnir.   Starfsmannafélag Landhelgisgæslunnar. Úr myndasafni: Guðmundur H. Kjærnested þorskastríðshetja í brúnni á Tý.   Lesa meira
 

30. maí 2006 : Líf bjargaði þremur mönnum úr hlíðum Hvannadalshnjúks eftir að þeir lentu í snjóflóði

Þriðjudagur 30. maí 2006.   Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, Líf, sótti í dag þrjá slasaða menn í suðurhlíðar Hvannadalshnjúks eftir að þeir höfðu lent í snjóflóði milli Dyrhamars og hnjúksins.    Mennirnir voru alls fimm á ferð en þrír þeirra slösuðust.  Talið er að einn þeirra hafi fótbrotnað og hinir slasast minna. Mennirnir voru líka þrekaðir eftir að hafa lent í snjóflóðinu og var talið nauðsynlegt að sækja þá hið fyrsta.  Áhöfn Lífar var kölluð út kl. 12:44 og fór þyrlan í loftið kl. 13:15.  Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, Syn, var einnig send af stað en um borð voru auk áhafnarinnar, fallhlífarsveitarmenn frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.  Syn þjónaði einnig þeim tilgangi að vera endurvarpsstöð fyrir fjarskipti milli björgunareininga. Líf var komin á svæðið um kl. 14:30 og gekk ekki vel í fyrstu að komast að slysstaðnum vegna slæms skyggnis.  Það fór svo að lokum að það rofaði til og Líf tókst að komast að mönnunum.  Sigmaður í áhöfn Lífar seig niður til þeirra og voru þrír þeirra, þeir slösuðu, fluttir um borð í þyrluna.  Hún flaug með mennina til Hafnar í Hornafirði en þar var tekin ákvörðun um að flytja þá með Syn, flugvél Landhelgisgæslunnar, til Reykjavíkur.  Flugvélin lendir á Reykjavíkurflugvelli um kl. 18:30.Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.Úr samhæfingarstöðinni í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð í dag. Fremstir á myndinni eru Benóný Ásgrímsson yfirflugstjóri Landhelgisgæslunnar (LHG), Halldór Benóný Nellett framkvæmdastjóri aðgerðasviðs LHG og Ásgrímur L. Ásgrímsson yfirmaður stjórnstöðvar LHG/vaktstöðvar siglinga að bera saman bækur sínar. Myndina tók Guðmundur Fylkisson aðalvarðstjóri í fjarskiptamiðstöð lögreglunnar. Lesa meira
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica